áhrif húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar á ungt fólk.
Virðulegur forseti. Hlutdeildarlánin ætla að vera drjúg í umræðu af hálfu ríkisstjórnarinnar í málefnum ungs fólks. Ég veit ekki hvort ungt fólk sækist sérstaklega eftir því að eiga sína fasteign með ríkinu en gott og vel. Hins vegar hefur komið fram að menn ætli að auka framlög til hlutdeildarlána. Þá væri gott að vita það ef hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra veit hvernig á að tryggja fjármögnun hlutdeildarlánanna. Ég er hins vegar sammála hæstv. forsætisráðherra sem nefndi það hér fyrr í dag og bendir á nauðsyn þess að auka á framboðshliðina á húsnæðismarkaði. Hlutdeildarlánin eru hins vegar eftirspurnardrifin aðgerð.
Mig langar síðan að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún ætli að standa vörð um stefnu Samfylkingarinnar í uppbyggingaráformum í Úlfarsárdal um t.d. þjónustu á 1. hæð, sem lögð er mikil áhersla á af hálfu borgaryfirvalda, þvert gegn ráðleggingum fasteignasala og verktaka sem hafa marglýst því yfir að það sé lítil sem engin (Forseti hringir.) eftirspurn eftir slíku húsnæði í nýjum hverfum borgarinnar.