157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

áhrif húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar á ungt fólk.

[15:28]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Það má vel vera að henni þyki kannski ekki merkilegt að við skulum vera að setja 5,5 milljarða í hlutdeildarlánin og það má vel vera að þarna sé ákveðinn hópur sem nýtir sér ekki hlutdeildarlánin en ég vil bara halda því fram hér og nú að sá hópur sem þarf ekki á því að halda stendur bara þokkalega styrkum stoðum. Sennilega er það nú svo að fyrstu kaupendur — þú ert metinn inn í þetta kerfi og ef þú ert verulega vel efnum búinn þá væntanlega þarftu lítið á því að halda. Við teljum að hlutdeildarlánakerfið og þessi stuðningur sem við erum að koma með inn á markaðinn muni líka koma til móts við það að unga fólkið okkar sé ekki að reiða sig á framlög frá foreldrum eða aðstandendum til að koma sér þaki yfir höfuðið. Þannig að hvernig sem á málin er litið þá erum við mjög stolt af þessu. Við vitum að við erum raunverulega að gjörbreyta því landslagi sem hefur verið hér og orsakað þá skekkju sem er búin að vera á framboðshliðinni og eftirspurnarhliðinni þar sem í rauninni framboðið er nægt af íbúðum sem fólk hefur raunverulega ekki ráð á að kaupa nema innan ákveðinna marka.