157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

vaxtadómur Hæstaréttar.

[15:29]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Þetta er nokkuð merkilegur fyrirspurnatími í því að hér hafa komið fram upplýsingar sem ég verð að viðurkenna að koma mér mjög á óvart. Við vitum það, virðulegi forseti, að það er engin sleggja, ekkert plan og hæstv. forsætisráðherra sagðist ætla að koma með húsnæðispakka í vor. Það vita allir að það er vetur, nema kannski forysta Samfylkingarinnar í borginni sem er enn þá að velta því fyrir sér hvernig eigi að moka snjóinn sem nú er farinn.

Hæstv. forsætisráðherra svaraði spurningunni sem ég ætla að koma með um það hvort ríkisstjórnin hefði búið sig undir dóm sem augljóslega var að fara að falla. Hæstv. forsætisráðherra sagði bara hér áðan, þegar hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson spurði hana: Það var ekkert gert. Hvernig má það vera að við séum með ríkisstjórn í landinu sem býr sig ekki undir jafn mikilvæga niðurstöðu og augljóst var að myndi verða?

Mín spurning er þessi, virðulegi forseti: Af hverju í ósköpunum undirbjó ríkisstjórnin sig ekki fyrir niðurstöðu?

Virðulegi forseti. Þetta er einsdæmi. Núna kemur hæstv. forsætisráðherra upp og segir: Ég ætla að eyða óvissu. Óvissan hefur aldrei verið meiri. Það er fullkomlega ábyrgðarlaust af ríkisstjórninni að búa sig ekki undir þetta.

Ég vil spyrja líka, virðulegi forseti, af því að hæstv. forsætisráðherra svaraði því ekki: Á að fara að styrkja Reykjavíkurborg fjárhagslega með öðrum hætti til að byggja hverfi? Ef svo er, er það eitthvað sem öðrum býðst að fá?