157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

vaxtadómur Hæstaréttar.

[15:31]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hér eru mjög stór og sterk orð látin falla. Hér sagði enginn í pontu áðan að enginn hefði verið búinn að undirbúa nokkurn skapaðan hlut þó að vísitala til að undirbyggja verðtryggða veitingu á breytilegum vöxtum hefði ekki verið undirbúin klukkutímann sem þetta féll. Auðvitað kemur þessi hugmynd til í undirbúningi að mögulegri stöðu sem upp kemur. Það liggur alveg fyrir. Það kom líka fram í máli fjármálastöðugleikanefndar sem er að bregðast hratt við, að það liggur alveg í loftinu að þessi hætta gæti verið til staðar þannig að það er bara ekki rétt að enginn hafi verið búinn að undirbúa sig. En það þýðir ekki að það geti ekki tekið nokkra daga. Ég ætla líka að taka það fram að það er ekki búið að fella alla dóma í þessu máli þannig að við verðum líka aðeins að sjá hvernig landið liggur áður en það koma lokaúrræði. Þetta eru mjög þung orð sem hér eru látin falla fyrir einhvers konar fyrirsagnir. Við skulum hafa það alveg á hreinu að stjórnkerfið var alveg með augun á þessum bolta.

Og varðandi þessa Reykjavíkurpólitíkur endaleysu: Hvergi kemur það fram í húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar eða í umræðu um næsta ríkisstjórnarpakka sem á að koma eftir áramót að hann snúi bara að Reykjavík. Það eru mörg sveitarfélög í landinu sem hv. þingmaður — ef hann hefur rætt við aðra sveitarstjórnarfulltrúa en hér í Reykjavík — sem hafa kvartað undan skorti á aðkomu ríkisins undanfarinn áratug, að innviðauppbyggingu og samstarfi. Þetta á jafnt við um Árborg eins og Akranes, eins og Reykjavík, eins og Kragann. Þetta snýr að sveitarfélögunum í landinu í heild sinni. Þannig að hv. þingmanni mun ekki takast að breyta þessu eins og alltaf í umræðu um Reykjavíkurborg. Þetta snýst um sveitarfélögin í landinu og það er fullkomlega eðlilegt að ríkið taki upp það samtal við þau sveitarfélög óháð því hvort þau séu nákvæmlega hér (Forseti hringir.) í hringiðu Alþingis akkúrat núna eða ekki.