157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

vaxtadómur Hæstaréttar.

[15:34]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil bara hvetja hæstv. forsætisráðherra til að hlusta á hæstv. félagsmálaráðherra þegar verið er að tala um framboð á eignum í Reykjavík. Hæstv. félagsmálaráðherra bendir á hið augljósa, að hér séu mjög dýrar eignir sem ekki nema ríkasta fólkið geti keypt og einhverra hluta vegna sleppa menn bílastæðum þar. Ég verð að viðurkenna, virðulegi forseti, að lengi getur vont versnað og ég hvet hæstv. forsætisráðherra til að hlæja ekki að ástandinu. Þetta er grafalvarlegt mál. Ég hef setið í ríkisstjórn og þegar svona dómsmál koma upp þá undirbýr viðkomandi ríkisstjórn sig undir það með sviðsmyndum. Það er öllum ljóst sem hafa fylgst með þessari umræðu að ríkisstjórnin undirbjó sig ekki fyrir mismunandi sviðsmyndir. Það er grafalvarlegt. Og nú koma hagsmunaaðilar og segja: Óvissan hefur aldrei verið meiri. Þannig að, virðulegi forseti, það er með ólíkindum að fyrsti húsnæðispakkinn (Forseti hringir.) sem átti að koma í vor komi núna í vetur. Hann er ekki með bráðaaðgerðum og ég hvet hæstv. ríkisstjórn, úr því að hún undirbjó sig ekki undir dóminn, til að vinna mjög hratt og við munum hjálpa henni eins og hægt er. En þjóðin á betra skilið.