vaxtadómur Hæstaréttar.
Frú forseti. Ég ætla bara að ítreka það sem ég sagði hér áður: Auðvitað var fólk búið að búa sig undir mismunandi sviðsmyndir. Það er ástæðan fyrir því að þessi vinna er að ganga jafn hratt og hún er að ganga akkúrat núna. Þrátt fyrir að það sé enn þá ákveðin óvissa um hvernig lánveitingar verða hjá ákveðnum bönkum þá hafa samtölin verið virk, samtölin við Seðlabankann hafa líka verið virk. Ég ítreka bara það sem ég sagði áðan í fyrra svari ef hv. þingmaður heyrði ekki það sem ég sagði: Vissulega var búið að undirbúa þessa stöðu þó að hún sé flókin og gæti þróast enn þá meira. Það er fjöldinn allur af aðgerðum sem koma þarna inn sem má vel flokka sem bráðaaðgerðir. Það má nefna til að mynda það frumvarp sem liggur núna fyrir í þinginu og snýr að Airbnb. Það má horfa á fleiri þætti eins og að fara strax í hlutdeildarlánaútvíkkunina og láta hana stuðla að frekari uppbyggingu, bara strax núna á þessu miðja ári þar sem við erum búin að opna þá flóka og flækjustig sem var í kerfinu áður.
Betur má ef duga skal, ég er alveg sammála, það eru tíu mánuðir liðnir af þessu stjórnarsamstarfi og við erum búin að framkvæma mikið. (Forseti hringir.) Við munum framkvæma enn þá meira á næsta hálfa ári, ef svo má segja. (GÞÞ: Formaður fjárlaganefndar segir …) Ég þakka hv. þingmanni innilega fyrir fyrirspurnatímann, hann var mjög ánægjulegur.