frumvarp um ráðstöfun fæðingarorlofsréttar.
Frú forseti. Ég þakka heillaóskirnar rétt í þessu. Mig langaði til að spara hæstv. forsætisráðherra tíma hér á eftir í ljósi þess að hæstv. ráðherra virðist ætla að fylgjast með umræðum um Airbnb-málið hér síðar í dag, að það er ekki á dagskrá. (Forsrh.: Ég sagði ekki síðar í dag.) Afsakaðu. Mér fannst það liggja í orðum hæstv. ráðherra.
Það sem ég vildi koma sérstaklega inn á hér í ljósi svara hæstv. félagsmálaráðherra um einarða afstöðu hennar til þess að auka frelsi foreldra til að ráðstafa fæðingarorlofi sínu þá mun ég á morgun mæla aftur, í annað skipti, fyrir máli frá okkur í þingflokki Miðflokksins sem gengur einmitt út á það að foreldrum sé treyst til að ráðstafa þessum réttindum þannig að best sé fyrir barnið. Af því að þingmenn Flokks fólksins eru flestir í salnum ætla ég bara að láta þingmenn vita, í ljósi þessarar afstöðu formannsins, að ég hefði mjög gaman af því ef þingmenn Flokks fólksins kæmu sem meðflutningsmenn á þetta mál og mun senda þingmönnum Flokks fólksins póst þess efnis núna á eftir. Það myndi gleðja mig mjög að þingflokkurinn kæmi með á þetta góða mál, að treysta foreldrunum fyrir því (Forseti hringir.) að ráðstafa fæðingarorlofsréttindum sínum þannig að best sé fyrir barnið en ekki hið opinbera.