húsaleigulög.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á húsaleigu og er markmið þess að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Við meðferð málsins hafði nefndin einnig hliðsjón af þeim umsögnum sem bárust við þinglega meðferð málsins á síðasta löggjafarþingi.
Frumvarp þetta var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá velferðarnefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu hinn 2. júní síðastliðinn en málið hlaut ekki afgreiðslu. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu var tekið tillit til þeirra breytinga sem meiri hluti velferðarnefndar lagði til í fyrrnefndu nefndaráliti sínu á 156. löggjafarþingi en að öðru leyti er frumvarpið lagt fram óbreytt. Meiri hluti velferðarnefndar telur þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá 156. þingi til bóta. Vísar meiri hlutinn til umfjöllunar sinnar og áherslna sem fram komu í áðurnefndu nefndaráliti frá síðasta löggjafarþingi.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið á ný vill meiri hluti velferðarnefndar árétta sérstaklega: Nefndin fjallaði á ný um stöðu óhagnaðardrifinna leigufélaga, en um þau var einnig fjallað í nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar á síðasta löggjafarþingi. Í nýjum umsögnum sem bárust nefndinni komu fram athugasemdir um að kveða þyrfti skýrt á um það í lögum að leigufélög sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða, á borð við Byggingafélag námsmanna eða Félagsstofnun stúdenta, séu undanþegin ákvæði 2. gr. frumvarpsins og geti áfram vísitölutengt samninga sína þótt þeir séu gerðir til skamms tíma.
Bent var á mikilvægi þess fyrir starfsemi félaganna að leigufjárhæð geti tekið mið af vísitölu neysluverðs til verðtryggingar frá upphafi samningstíma. Slíkt væri forsenda þess að hægt væri að tryggja fjárhagslegt jafnvægi í rekstri félaganna og halda upphafsverði leigusamningsins í lágmarki. Í umsögnum kom fram að án undanþágu þessara félaga frá 2. gr. frumvarpsins kynni leiguverð að hækka.
Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis sem nefndinni barst á síðasta löggjafarþingi komu fram sjónarmið um að ekki væri ástæða til þess að gera greinarmun á því hvort leigjandi leigi af hagnaðar- eða óhagnaðardrifnum leigusala, tók meiri hluti undir þau sjónarmið. Meiri hluti velferðarnefndar áréttar þessi sjónarmið sem fram koma í minnisblaði ráðuneytisins. Telur meiri hlutinn að undanþágur frá 2. gr. frumvarpsins kunni að grafa undan markmiðum frumvarpsins sem er að stuðla að auknum fyrirsjáanleika á leigumarkaði.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir, Grímur Grímsson, Ingibjörg Isaksen og Kristján Þórður Snæbjarnarson.