157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

húsaleigulög.

108. mál
[16:22]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins til að bregðast við og fá álit frá framsögumanni sem fór yfir meirihlutaálit velferðarnefndar sem hefur fjallað um þetta mál á þessu þingi og áður. Það komu fram miklar athugasemdir við frumvarpið frá ýmsum aðilum og þarna greinir okkur mjög á um hversu gott mál er um að ræða eða hversu vont mál er um að ræða væri líka hægt að segja.

Maður hefur alveg skilning á því að það sé þörf og áhugi fyrir því að bæta upplýsingar og afla upplýsinga um kerfið og þar fram eftir götunum. En mig langar til að fá fram viðhorf hv. þm. Jónínu Bjarkar Óskarsdóttur við þeim athugasemdum sem hafa komið fram um að þetta séu íþyngjandi aðgerðir sem hér er verið að leggja til og það sé í rauninni verið að setja auknar kvaðir á þá sem eru að leigja því að í huga okkar í minni hlutanum, alla vega einhverra, og margra þeirra sem hafa komið fram með athugasemdir er greinarmunur á því hvort fólk sé að leigja t.d. eina íbúð eða sé að stunda útleigu í atvinnuskyni í stærra samhengi. Mig langar því til að fá viðhorf hv. þingmanns til þess hvort hún hafi engar áhyggjur af því að þeir sem hafa t.d. verið að leigja til ættingja og annað og vilja bara gera það í rólegheitum, eins og maður segir, fólk gerir náttúrlega samninga sín á milli og húsnæðisbætur og annað eru háðar því að leiga sé skráð, hvort hún hafi engan skilning eða áhyggjur af því að þessar íþyngjandi kvaðir kunni að hafa áhrif á framboð. Það munar um hverja íbúð til að búa í núna, eins og við þekkjum, og tugir íbúða sem kannski detta út af markaðnum sökum þessa, hvort það sé ekki ástæða til að hafa áhyggjur af því.