Störf þingsins.
Frú forseti. Ég átti gott samtal við hæstv. félagsmálaráðherra í fyrirspurnatíma í gær um tíu og hálfs mánaða orlofið, sem er fæðingarorlofið, það er ekki 12 mánaða orlof. Það er áhugavert að vita að hæstv. ráðherra tekur heils hugar undir sjónarmið okkar í Miðflokknum um að leyfa frjálsa ráðstöfun orlofsins, þannig að það geti í raun og veru staðið undir nafni sem 12 mánaða orlof. Mér heyrðist á Samfylkingarmönnum hérna fyrir utan, eftir á, að það væri kannski ekkert mikill áhugi fyrir þessum breytingum þar en þeir verða að svara fyrir það sjálfir. Ég sé að þeir gjóa sumir áhugasamir á mig augum og væri óskandi að fá það fram frá flokknum hvort hann geti hugsað sér að leyfa frjálsa ráðstöfun fæðingarorlofs.
Ég vildi líka hreinsa upp smá rugling sem varð í tengslum við aðra fyrirspurn mína til hæstv. félagsmálaráðherra Ingu Sæland um að greiðslurnar þurfi ekki að miða við þetta 12 mánaða samfellda tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingu barns heldur geti sem sagt miðast við að upphaflegu orlofsgreiðslurnar séu ekki skertar orlofsgreiðslur — tvöföld skerðing, sem margir verða fyrir ef þeir eignast börn. Nú erum við aftur komin í sama rugling en ég býst við að menn skilji þetta. Ég veit að hæstv. ráðherra hlýtur að hafa skilning á því sem ég var að tala um. Það er ekki alveg boðlegt að láta eins og maður skilji ekki til hvers er vísað. Sömuleiðis væri áhugavert að fá fram afstöðu hæstv. félagsmálaráðherra þegar hún hefur glöggvað sig á inntaki þessarar fyrirspurnar, hvort þetta standi til vegna þess að það er mjög mikilvægt núna að við notum kerfin til að styðja við barnafjölskyldur.
Þegar við tölum um þetta atriði, að fólk fái að miða orlofsgreiðslurnar við upphaflegu orlofsgreiðslurnar ef það fer beint í orlof eftir barneignir án þess að fara nógu lengi á vinnumarkað, þá er það mjög mikilvægur hópur í tengslum við barneignaumræðuna, þ.e. að fólk sem er nú þegar í barneignum sé hvatt til að halda áfram vegna þess að hitt er erfiðari þröskuldur, að fá fólk af stað. Þetta er mikilvægur hvati sem við getum haft og verður forvitnilegt að heyra hvað hæstv. ráðherra segir.