Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í nýjum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar, þeim fyrsta af mörgum, er sjónum einkum beint að fyrstu kaupendum og ungu fólki. Fram að þessu hefur þröskuldurinn sem þessu fólki hefur verið gert að klífa verið nær ókleifur öllum nema þeim sem hafa getað reitt sig á fjárhagslegan stuðning úr baklandi sínu. Þetta verður gert með ýmsum leiðum. Í fyrsta lagi á að tryggja að hlutdeildarlánin svokölluðu virki almennilega. Það verður gert með því að rýmka skilyrðin fyrir lánveitingum, tryggja að þeim verði úthlutað mánaðarlega og hækka fjárhæðirnar sem ríkið setur í lánveitingarnar um 1,5 milljarð kr. á ári. Í öðru lagi með því að stórauka framboð á íbúðum þar sem sérstök áhersla verður á uppbyggingu íbúða sem henta ungu fólki og fyrstu kaupendum. Stærsta skrefið sem stigið verður er uppbygging á 4.000 íbúðum í Úlfarsárdal. Í þriðja lagi á að hækka framlag ríkisins til uppbyggingar íbúða fyrir námsmenn og öryrkja og félagslegra íbúða á vegum sveitarfélaga. Í fjórða lagi á að tryggja áfram framboð á verðtryggðum lánum sem henta best fyrstu kaupendum með því að bregðast hratt og fumlaust við vaxtadómi Hæstaréttar með nýjum væntanlegum vaxtaviðmiðum. Síðast en ekki síst verður tryggt að skattfrjáls nýting á séreignarsparnaði verði réttur til tíu ára sem allir eiga, ekki tilviljunarkennd aðgerð sem hingað til hefur verið framlengd ár frá ári og hefur aðallega nýst tekjuhæstu hópum samfélagsins.
Vonast var til að húsnæðispakkinn, sá stærsti í áratugi, myndi leiða til þess að Seðlabankinn myndi slaka á lánþegaskilyrðum. Tveimur dögum síðar var hann búinn að gera það, ungu fólki og fyrstu kaupendum til heilla.
Virðulegur forseti. Svona gerir ríkisstjórn sem lætur verkin tala, ríkisstjórn sem þorir og framkvæmir, svona vinnur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.