Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Dómurinn í vaxtamálinu svokallaða hefur sett húsnæðismarkaðinn í algjört uppnám. Viðbrögð bankanna við þessum dómi, sem átti að auka skýrleika, hafa komið á óvart. Þeir lokuðu einfaldlega bara sjoppunni og fólk sem hafði fengið vilyrði um lán eða hugðist taka lán fær það ekki lengur. Það eina sem heyrist frá Seðlabanka Íslands enn sem komið er er að heimila ungu fólki, sem stenst engan veginn greiðslumat, að taka 90% lán í staðinn fyrir 85%.
Þetta er, virðulegur forseti, ótrúleg staða að vera í. Almenningur getur engan veginn náð utan um það hvers vegna ekki er hægt að taka verðtryggð lán. En burt séð frá þessum dómi hljótum við að fara að spyrja okkur að því hvort þetta sé ekki orðið gott. Hversu lengi á að bjóða fólki upp á svona vitleysu? Er þetta ekki fullreynt? Við höfum nú í áratugi búið við húsnæðismarkað sem er í engu samræmi við það sem gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Að greiða húsnæði sitt mörgum sinnum nær auðvitað ekki nokkurri átt. Við hljótum að gera þá kröfu að sitja við sama borð og almenningur í samanburðarlöndum. Hvers vegna eru stýrivextir á Íslandi þrefalt hærri en annars staðar? Og hvers vegna þurfa raunvextir að vera svona háir á Íslandi? Raunvextir hafa farið hækkandi eftir því sem verðbólga hefur farið niður á við og það færir fjármagn frá skuldurum til fjármagnseigenda. Nýjasta orðið sem kynnt hefur verið til sögunnar er orðið vaxtaviðmið og nú bíða allir spenntir eftir því hvert það verður því að það mun ráða örlögum margra.
Virðulegur forseti. Rússneska rúllettan, eða eigum við að segja íslenska rúllettan heldur því áfram.