157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[13:59]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Frú forseti. Í gær funduðu fulltrúar í utanríkismálanefnd Alþingis með Filippo Grandi, framkvæmdastjóra Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Stofnunin er kjölfestan í alþjóðlegri viðleitni til að veita vernd og lífsnauðsynlega aðstoð þeim sem þurft hafa að flýja heimili sín. Til að átta okkur á þörfinni er talað um að 120 milljónir manna séu á flótta í heiminum. Þetta fólk þarf húsnæði, mat, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, hjálp við að koma sér fjarri hættusvæðum og — ef vel gengur og friður kemst á, sem er alltaf markmiðið — aðstoð við að koma sér aftur á staðinn sem það flúði frá. Þetta á sérstaklega við um helstu krísusvæði í heiminum, átökin í Súdan, óvissuna í kringum Venesúela og auðvitað ástandið á Gaza og í Úkraínu þar sem milljónir manna eru enn í útlegð. Þá barst talið að Sýrlandi þar sem við ræddum vonarneista um að ástandið gæti lagast eftir stjórnarskiptin og viðleitni alþjóðasamfélagsins til að vinna með nýjum stjórnvöldum þar í landi. Það er ljóst að framlag Íslands er mikils metið. Stuðningur Íslands nam t.d. 4 milljónum bandaríkjadala árið 2023 og einnig árið 2024. Það er líka tekið eftir því að Ísland hefur tekið að sér að taka við fólki sem flúið hefur átakasvæði. Við eigum að gera það og við eigum að gera það vel. Við getum lært að gera það betur, passa upp á kerfið sem við höfum smíðað utan um þessa aðstoð til að það nýtist best þar sem þörfin er mest, en almennt getum við verið nokkuð stolt af framlagi okkar.

Forseti. Ég hef lokið máli mínu.