157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

fullgilding samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.

219. mál
[14:13]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um heimild til handa ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun. Það er um að ræða fyrsta alþjóðasamninginn sem hefur það að markmiði að nýta ákvæði viðskiptasamninga til að styðja við orkuskipti og aðrar aðgerðir í loftslags- og umhverfismálum.

Viðræður milli samningsaðila hófust árið 2019 en töfðust nokkuð á tíma heimsfaraldurs. Samningurinn var svo undirritaður í nóvember árið 2024. Auk Íslands eiga Sviss, Nýja Sjáland og Kosta Ríka aðild að samningnum. Eftir gildistöku samningsins verður hann svo opinn fyrir aðild allra aðildarríkja Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

Einhver kann að spyrja hvers vegna fjögur lítil ríki hafi ákveðið að ganga fram fyrir skjöldu með gerð slíks samnings. Svarið við því er einfalt; öll viðleitni meðal stærri ríkjahópa til gerðar viðlíka samninga á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofunarinnar hefur hingað til mistekist. Ísland, ásamt þessum þremur ríkjum sem ég nefndi og aðild eiga að samningnum, hefur nú sýnt fram á það í verki að slík samningagerð er möguleg. Þannig er komið fordæmi fyrir önnur ríki að fylgja og vonir standa til að áhrif samningsins aukist samfara aðild fleiri ríkja.

Það er alveg ljóst að alþjóðaviðskiptakerfið verður að leggja sitt af mörkum til að sameiginleg markmið ríkja heims í loftslags- og umhverfismálum nái fram að ganga. Ætlað er að ná fram markmiðum samningsins með því að auka frelsi í viðskiptum með umhverfisvörur og umhverfisþjónustu, takmarka ríkisstyrki vegna jarðefnaeldsneytis og samræma staðla um umhverfismerkingar.

Í kafla samningsins um umhverfisvörur eru tollar felldir niður af 300 skilgreindum umhverfisvörum. Allar þessar vörur, líkt og aðrar iðnaðarvörur, bera nú þegar engan toll inn til Íslands en það er íslenskum framleiðendum hins vegar í hag að tollar á slíkum vörum falli niður meðal annarra samningsaðila. Það er íslenskum hagsmunum og samningsframleiðendum í hag að þeir falli niður meðal annarra ríkja. Hér vil ég sérstaklega nefna, og ekki síst á þessum umrótatímum, kísilmálm en íslenskir framleiðendur þeirrar vöru lögðu sérstaklega áherslu á að koma henni inn í þennan samning og það tókst með kísilinn. Einnig mætti nefna steinull sem var sett inn í samninginn. Samningurinn nær hins vegar ekki yfir landbúnaðarvörur sem slíkar og breytir engu um viðskipti með þær, hvorki innflutning né útflutning.

Kafli samningsins um þjónustuviðskipti skilgreinir rúmlega 100 undirgeira umhverfis- og umhverfistengdrar þjónustu og takast ríkin á hendur skuldbindingar um markaðsaðgang á þeim sviðum. Þjónusta tengd jarðhita og kolefnisföngum er sérstaklega skilgreind í samningnum sem umhverfisvæn þjónusta og ég tel þetta geta haft mikla þýðingu. Það liðkar fyrir því ekki síst að íslensk fyrirtæki geti veitt sína þekkingu og þjónustu yfir landamæri samningsaðila.

Kafla samningsins um styrki vegna jarðefnaeldsneytis er ætlað að takmarka ríkisstyrki og koma böndum á niðurgreiðslu til framleiðslu og neyslu jarðefnaeldsneytis. Íslensk stjórnvöld hafa almennt ekki talið réttlætanlegt að veita almannafé í aðgerðir sem hvetja til aukinnar neyslu jarðefnaeldsneytis. Á heimsvísu mælast hins vegar niðurgreiðslur til framleiðslu og neyslu jarðefnaeldsneytis enn meiri en samanlagður stuðningur til allra endurnýjanlegra orkugjafa. Það er ljóst að því þarf að breyta og er samningnum ætlað að setja viðmið og reglur sem miða að því.

Kafli samningsins um umhverfismerkingar setur svo fram leiðbeinandi viðmið til að styðja við hönnun og innleiðingu valkvæðra umhverfismerkinga, og ég undirstrika innleiðingu valkvæðra umhverfismerkinga. Með því er ætlunin að styðja ekki síst við neytendur sem vilja einmitt haga neyslu sinni í samræmi við markmið um aukna sjálfbærni og skapa þannig aukið traust í vöruviðskiptum. Það er rétt að taka fram að viðmiðin munu ekki hafa áhrif á þær umhverfismerkingar sem eru nú þegar í notkun á Íslandi eins og umhverfismerkið Svanurinn.

Virðulegi forseti. Sú ánægjulega frétt barst á dögunum að losun gróðurhúsalofttegunda dróst saman á Íslandi á síðasta ári. Ísland er í raun eitt fárra ríkja þar sem sú er raunin. Okkar loftslagsstefna er árangursrík og það er heimilunum í hag að sem flest ríki náð viðlíka árangri og við höfum náð. Tilkoma samnings um loftslagsmál, viðskipti og sjálfbæra þróun er lítið skref í viðleitni til að ýta undir slíka þróun en mikilvægt skref.

Stefnt er að því að samningurinn taki formlega gildi samfara því sem 15. ráðherrafundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar fer fram í lok mars á næsta ári.

Ég legg því til, hæstv. forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til síðari umræðu og til umfjöllunar í utanríkismálanefnd.