157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

fullgilding samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.

219. mál
[14:19]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég hef í raun bara eina spurningu til hæstv. utanríkisráðherra og hún er þessi: Af hverju erum við að leggja þetta fram? Af hverju er hæstv. ráðherra kominn með þetta mál frá fyrri ríkisstjórn, frá ríkisstjórn Vinstri grænna, vinstri ríkisstjórninni sem var hér? Af hverju kemur hæstv. utanríkisráðherra og leggur hér fram fyrir Alþingi ósk um að Alþingi heimili ríkisstjórninni að fullgilda þennan samning sem undirritaður var nokkrum dögum fyrir síðustu kosningar í nóvember fyrir ári? Nokkrum dögum áður gekk síðasta ríkisstjórn Vinstri grænna fram með þeim hætti að undirrita enn einn loftslagssamninginn, enn fleiri skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum, og það þótt það liggi fyrir í dag að Íslendingar, íslensk stjórnvöld, hafa ekki hugmynd um hvaða skuldbindingar hvíla á Íslandi vegna núgildandi alþjóðlegra samninga. Það liggur fyrir.

Ísland hefur í áratugi tekið þátt í alls kyns samningum um loftslagsmál, alþjóðlegum loftslagsmálum, alþjóðlegum loftslagssamningum. Það er ekki lengra síðan en í ágúst sl. að það birtist frétt um það, ítarleg frétt, í Vísi og viðtal við sérfræðing Íslands í loftslagsmálum við Háskóla Íslands sem sagði að það sé óljóst í dag hverjar skuldbindingar Íslands séu samkvæmt Parísarsáttmálanum, samkvæmt loftslagssamningunum sem við höfum tekið þátt í og samkvæmt samstarfi sem Ísland á núna og kærði sig inn í með Evrópusambandinu. Það er óljóst. Allt að einu kemur hæstv. utanríkisráðherra hér og leggur til enn einn nýjan samning sem einhver örfá ríki hafa tekið sig saman um, uppdiktað og skrifað undir og íslenska vinstri stjórnin skrifaði undir hann á síðasta kjörtímabili. Af hverju er þetta komið aftur hingað?