fullgilding samnings um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun.
Virðulegur forseti. Hæstv. utanríkisráðherra ætlar að höggva í sama knérunn og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sem var umhverfisráðherra þegar ritað var undir þessa yfirlýsingu. Hún heggur í sama knérunn að því leyti að telja að mál af þessum toga séu frelsismál, að þetta sé einhver markaður. Þetta er allt gervimarkaður, það er ekkert frelsi í þessu. Þessi samningur tiltekur að auki sérstaklega bann við alls kyns ákvörðunum stjórnvalda sem mögulega gætu þýtt einhvers konar þjónkun við jarðefnaeldsneyti. Hvað segir þessi samningur t.d. um mögulega leit og rannsókn á hafsbotninum í kringum Ísland, leit að olíu eða gasi? Hvaða afstöðu hafa samningsaðilar til þess, t.d. ef einhverjum myndi detta í hug að veita tímabundnar ívilnanir til nýsköpunarfyrirtækja sem hefðu áhuga á að leita hér á landgrunninu, til að rannsaka gas og olíulindir í kringum Ísland? Þessi samningur tekur fyrir það. Hann tekur fyrir alls kyns slíkar ákvarðanir. Það væri líka áhugavert að heyra það frá hæstv. ráðherra hvaða augum hún lítur refsiheimildirnar í þessu. Stór ríki nefnir hún í þessum málum, góð ríki sem við eigum mikla samleið með, líkt þenkjandi, eins og títt er talað um á enskri tungu, Kosta Ríka, Nýja-Sjáland og Sviss. Hæstv. ráðherra nefnir það ekki að upphaflega var Noregur með puttana í þessu plaggi en ákvað að draga sig út. Af hverju skyldi það nú vera? Og ætli Noregur standi okkur ekki nær í umhverfismálum sem annar af tveimur heimsmeisturum, með okkur, þegar kemur að loftslagsmálum? Hvorki ég né Miðflokkurinn erum í neinni afneitun í loftslagsmálum. Við höldum því til haga að Ísland er heimsmeistari þegar kemur að losun, þ.e. við stöndum okkur best við þær aðstæður. Það mun batna með tíð og tíma og þarf enga samninga við Kosta Ríka eða Nýja-Sjáland til að ná áfram frábærum árangri hér á Íslandi.