þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar framsögu í þessu máli sem hún flytur ásamt hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni. Þær spurningar sem ég var með lúta kannski svolítið að orðanotkun og orðalagi. Hún tók það reyndar fram í sinni framsöguræðu að hún myndi jafnvel telja móttökuskóla vera heppilegra orð yfir það sem hún leggur hér til og ég er að einhverju leyti sammála því. Mér fannst þekkingarsetur, þegar ég heyrði það fyrst, svolítið bera með sér að þarna væri einhvers konar setur „fullorðins fólks“ sem miðlaði af reynslu sinni. En eins og ég skil tillögu hv. þingmanns þá er hún frekar að leggja til einhvers konar móttökuskóla. Þá velti ég fyrir mér því sem stendur hérna í niðurlagi greinargerðarinnar með þekkingarsetur o.s.frv.
„Með þekkingarsetri líkt og hér er lagt til myndu sveitarfélög hafa þess kost að útfæra úrræðið nánar en leita til sérhæfðrar miðstöðvar sem byggi yfir þeirri þekkingu sem nauðsynleg er til þess að undirbúa nemendur af erlendum uppruna fyrir nám í almennum skólum.“
Ég er aðeins að velta fyrir mér hvort hún gæti útskýrt aðeins betur hvernig hún sér fyrir sér uppsetninguna í þessu. Mér finnst allt í lagi að taka góða umræðu um þetta. Þegar ég flyt til landsins 1988 er foreldrum mínum tilkynnt að tíu árum áður hafi líka verið pólskur krakki í skólunum þannig að þau hafi nú reynslu af þessu og það þurfi ekkert neinar áhyggjur að hafa. En síðan þá hefur auðvitað margt breyst og fjöldi þeirra erlendu barna sem koma hingað ár hvert er miklu, miklu hærri. Um tíma var farin sú leið að hafa sérstakar móttökudeildir og þær gengu að mörgu leyti ágætlega. Síðan var ákveðið að hverfa frá þeim. Margir sögðu að maður hefði séð að krakkarnir væru að útskrifast út úr móttökudeildinni þegar þau hættu að mæta í tíma í móttökudeildinni og byrjuðu bara að mæta í tíma með þeim bekkjum sem þau áttu að tilheyra. Þannig að það varð svona ákveðin falleg, náttúrleg útskrift út úr þessu. Mín persónulega skoðun er sú að það sé líklega besta fyrirkomulagið að hafa móttökudeildir, sem sagt ef við förum þá leið að hafa þær inni í einstaka skólum en ekki að hafa þetta miðlægt og dreifa síðan nemendum út úr kerfinu. (Forseti hringir.)
Ég ætla að biðja hv. þingmann að bregðast við þessu og líka varðandi hvaða uppsetningu hún hefði hugsað sér í móttökuskólunum annars vegar og sérhæfðu miðstöðvunum hins vegar.