þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og þakka honum sérstaklega fyrir að nefna það að Vilhjálmur Árnason er meðflutningsmaður minn á þessari þingsályktunartillögu. Ég gleymdi að nefna það. Hv. þingmaður spyr varðandi útfærsluna og orðanotkunina. Ég skil vel að fólk hafi velt fyrir sér þessu með þekkingarsetrið og þess vegna sagði ég að það hefði kannski farið ágætlega á því að hafa móttökuskóla í sviga fyrir aftan. Það er í rauninni það sem ég er að hugsa um, af því að hv. þingmaður sagði að þetta hljómaði eins og setur þar sem einhverjir fræðimenn kæmu saman. Það er einn angi af hugmyndinni því að ég veit að við eigum ágætissérfræðinga og mjög góða kennara sem eru reyndir í að taka á móti börnum af erlendum uppruna. Hv. þingmaður nefnir hér ágætisdæmi úr eigin æsku og reynslan er orðin miklu meiri í grunnskólum landsins en hún er mjög misjöfn. Það kann að vera allt, allt öðruvísi að taka til að mynda á móti pólsku barni eða barni frá Palestínu eða barni frá Úkraínu. Þó að kunnátta sé til staðar að taka á móti barni sem hefur ekki íslensku sem móðurmál þá kunna ýmsir aðrir þættir að spila þar inn í.
Ég sé það fyrir mér að þessi miðstöð, eða þekkingarsetur eins og ég hef ákveðið að kalla það hér en er opin fyrir öllum tillögum um það, sé líka hluti af því að taka okkar besta fólk sem hefur mestu hæfnina og reynslu í þessu og hafa á einum stað til að veita þessa þjónustu. Ég sé fyrir mér skóla, en í ljósi þess að Ísland er nú stórt land þá verður ekki hægt að hafa skóla á öllum stöðum. Þess vegna held ég að móttökumiðstöð eða setur inni í skólum á stærri svæðum geti vel fúnkerað. En ég nefni til að mynda bara mitt sveitarfélag, Mosfellsbæ. Ég sé ekki ástæðu til þess að slíkt setur sé inni í öllum grunnskólunum í Mosfellsbæ eða öllum skólunum í Hafnarfirði. Hafnarfjörður hefur til að mynda ágætisreynslu af því að vera með eitthvað sem ég held að þau kalli hringekju í ákveðnum skólum, þannig að það er hægt að útfæra þetta með mismunandi hætti. En stóra málið held ég að sé að fá þá sem best til þekkja í að móta þessa hugmynd og þetta þarf ekki að vera eins alls staðar. Í einhverjum tilfellum gæti skólinn verið í skýjunum. Einhvers staðar gæti þetta verið raunverulegt hús þar sem börn koma saman úr ólíkum hverfum og í einhverjum tilfellum eru þetta setur inni í viðkomandi hverfisskóla.