þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur kærlega fyrir hennar andsvar. Ég velti því reyndar aðeins fyrir mér, vegna þess að ég man ekki eftir að hafa verið boðið að taka þátt í þessari þingsályktunartillögu, hvort það sé einhvers konar hefð núna hjá Sjálfstæðisflokknum að flytja sínar tillögur sjálfur, sem ég geri ekki athugasemdir við, en ég nefni bara að það eru alveg tækifæri til að gera hlutina betri með því að fleiri augu komi að. Ég held að hugurinn hérna á bak við sé mjög góður. Og ég er ekki að segja að hugurinn sé góður en hugmyndin hræðileg, hv. þingmaður á ekki að skilja mig þannig. En það eru svona nokkrir hlutir sem ég velti fyrir mér varðandi útfærsluna. Í fyrsta lagi er ég ekki alltaf sannfærður um að það sé rétt að koma á fót nýjum stofnunum. Ég er örlítið hræddur við það að fleiri litlar stofnanir í samfélaginu með einn forstöðumann og tvo, þrjá sérfræðinga séu endilega besta fyrirkomulagið hjá okkur. Við erum með stofnanir á sviði mennta- og fræðslumála sem ættu að geta tekið við þessu. Svo erum við líka með háskóla sem hefur mjög stóra og fjölmenna og öfluga kennslufræðideild sem gæti líka komið að þessu. Ég myndi örlítið velta fyrir mér hvort það kynni að vera heppilegra að staðsetja alla vega þann hluta sem snýr að rannsóknum og þekkingaröflun inni í einhverjum stofnunum sem eru nú þegar til heldur en að koma á fót einhverju nýju.
Og svo ég útfæri hugmyndir varðandi hugsanlegar móttökudeildir, sem ég tek fram að ég held að hafi í sögunni alls ekki reynst sérstaklega illa og í einhverjum tilfellum held ég að fólk hafi farið of geyst í þá hugmyndafræði að leggja þær niður, þá er það samt ekki þannig að þær þurfi að vera í hverjum einasta skóla. Á meðan það voru móttökudeildir í Reykjavík voru þær staðsettar í ákveðnum skólum og þá oft kannski í ákveðnum hverfum þar sem var hátt hlutfall innflytjenda meðal íbúa. En mín persónulega skoðun er sú að ef við förum í þessa leið, að hafa einhvers konar móttökuleiðir, sé best að koma þeim fyrir innan einstakra skóla frekar en að hafa það miðlægt og dreifa síðan nemendum út úr þeim skólum þegar þeir hafa lokið ákveðnu undirbúningsnámi.