þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Fyrst varðandi flutningsmennina þá hef ég haft þann háttinn á alltaf frá því að ég kom inn á þing að senda ekki á alla 63 þingmenn og óska eftir meðflutningi en ég hef oft rætt við fólk í öðrum flokkum. Ég heyri hér að hv. þingmaður virðist vera jákvæður fyrir þessu þannig að ég mun klárlega hafa það í huga ef ég lendi í þeirri stöðu að þurfa aftur að flytja þessa þingsályktun, sem ég vona auðvitað ekki. En þá ítreka ég það líka, út frá þeim vangaveltum sem hv. þingmaður er með og ég get að einhverju leyti verið sammála, að þetta er þingsályktun um að fela ráðherra að setja á fót slíkt setur og flytja þinginu skýrslu um það hvernig til tekst. Allar þessar vangaveltur sem hv. þingmaður var með get ég tekið undir og ég átta mig á því að þær yrðu í ferlinu. Þess vegna er hér ekki fullmótuð hugmynd um það nákvæmlega hvernig slíkt setur ætti að vera heldur vil ég einmitt að ráðherra, ásamt góðum sérfræðingum og vonandi ágætisinntaki úr því sem fólk hefur fram að færa í þessum sal, gæti ráðist í þetta verkefni. Þá má velta fyrir sér, eins og hv. þingmaður segir, þessu með móttökudeildir innan skólanna sem ég veit að eru til í dag, ég átta mig alveg á því. Hv. þingmaður ræðir þetta líka með fjölda stofnana og veit að sú sem hér stendur getur verið sammála honum í því að vera almennt ekki hrifin af því að setja á nýjar stofnanir.
Ég nefndi það líka áðan í mínum inngangsorðum að Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu er auðvitað að einhverju leyti að gera hluta af þessu í dag með því að þróa námsefni, sem hefur því miður ekki verið til, og ákveðnar leiðbeiningar og svona tækja- og tólakistu fyrir kennara og skóla og er það vel. Ég er í rauninni að velta fyrir mér einhvers konar útvíkkun á þeirri starfsemi.