157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.

12. mál
[15:09]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni andsvarið. Ég get verið sammála sumu af því sem fram kemur í máli hv. þingmanns. Ég átta mig á því að margir kennarar sækja um námsleyfi og miklu færri fá en vilja. Örugglega eru einhverjir kennarar sem hafa sérstakan áhuga á því hvernig á að taka á móti börnum af erlendum uppruna en ég ætla líka að vona að kennarar hafi áhuga á ýmsum öðrum þáttum sem þeir vilja gjarnan sérhæfa sig í. Það er alveg ljóst að okkur vantar t.d. mun fleiri raungreinakennara eða eitthvað slíkt þannig að það er af ýmsu að taka þegar kemur að þessu.

Ég átta mig alveg á því að þetta kunni að verða flókið í útfærslu varðandi landsbyggðina. Þess vegna er sagt þarna í greinargerðinni að þetta þurfi að útfæra með sérfræðingum, að námstími geti verið frá tveimur vikum og að hámarki tvö ár, sem ég held að sé algjört hámark. Ég skil það og ég get verið sammála hv. þingmanni í því að það er mikilvægt fyrir barnið að komast sem fyrst inn í sitt umhverfi, geta æft íþróttir til að mynda með börnum í sínu hverfi og tekið þátt í tómstundum. Barn sem ekki kann stakt orð í íslensku og getur verið með alls konar hluti í bakpokanum er einangrað þegar það er sett í þessar aðstæður án þess að fá einhver tæki og tól til að takast á við það.

Mér finnst ég greina aðeins í orðræðu hv. þingmanns smá viðkvæmni fyrir því að tala um móttökuskóla. Eins og ég lýsti í ræðu minni áðan var það þannig í Skandinavíu að vegna þess að þetta hafði ekki tekist nógu vel upp, líklega vegna þess að það var ekki nógu vel útfært, þá varð mikil hræðsla við þetta og fólk vildi bara tala um ógildingu og að þetta væri einhvern veginn einangrandi, að setja börn í einhvern ákveðinn skóla. Ég held að við verðum svolítið að taka plásturinn af og þora að taka samtal og samræðu um það að inntaka mállauss barns í fulla bekkjardeild sé ekki góð, hvorki fyrir barnið, öll hin börnin í bekknum né kennarann sem á mjög erfitt með að sinna öllum börnunum sem fyrir eru í bekknum með þær þarfir sem þau hafa. Þess vegna tala ég fyrir því að við setjum á laggirnar þetta sem ég kalla einhvers konar þekkingarmiðstöð, móttökuskóla, sem sé hægt að útfæra þannig að það sé hægt að þjóna landinu öllu þó að það sé mögulega gert með fræðslu og ráðgjöf inni í skólum á viðkomandi svæðum.