þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur og öllum þeim þingmönnum sem hafa tekið þátt í þessari umræðu sem er mjög góð og virkilega þörf. Hér hefur margt komið fram. Það sem skiptir kannski mestu máli er að hér er staðan sú að tugþúsundir erlendra ríkisborgara hafa flutt til Íslands, einhverjir eru orðnir ríkisborgarar eða með atvinnuleyfi hér á landi og hyggjast setjast að eða hafa skotið hér rótum. Þá skiptir ofboðslega miklu máli og í raun öllu máli að fyrsta kynslóðin eftir þá sem flytur hingað nái fullum tökum á tungumálinu. Við erum jafnvel í vandræðum með innfædda Íslendinga, að þeir nái ekki tökum á tungumálinu. Það að hafa tök á tungumálinu veitir okkur fullan aðgang að lýðræðinu og er að auki risastórt efnahagsmál. Fyrir okkur sem erum hér í salnum og þá sem eru að horfa á — við getum ímyndað okkur að við séum slarkfær í einhverju tungumáli, kunnum það sem sagt ekki reiprennandi, og okkur væri falið að koma fram á ráðstefnu og tala um eitthvert mál. Það er alla vega tilfinning þess sem hér stendur að ef maður hefur ekki full tök á tungumálinu sem maður ætlar að tjá sig á, á erlendu máli, þá líði manni pínulítið eins og maður sé sex ára. Maður hefur ekki hugtökin yfir hlutina, nær ekki að útskýra mál sitt, nær ekki að orða hugsanir sínar. Þetta skiptir ofboðslega miklu máli hvað varðar þátttöku í samfélaginu, að stórir hópar sem kunni ekki tungumálið verði ekki jaðarsettir.
Ég ítreka að tungumálið er lykillinn að samfélaginu. Þess vegna er frábært að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sé komin með þetta mál hingað inn. Það skiptir öllu máli að vera með móttökudeildir, móttökuskóla, eitthvað sem hjálpar börnum sem eru af erlendu bergi brotin og tala sum hver ekki ensku og ekki íslensku, að þau fái strax eins góða og sterka og mikla kennslu í íslensku frá okkar fremstu mönnum í faginu. Það skiptir miklu máli að þessir krakkar nái tökum á tungumálinu og þá eru þau miklu líklegri til að aðlagast fyrr. En ég get tekið undir það sem ég held að hafi komið fram hjá öllum sem hafa talað, þ.e. að félagslegi þátturinn skiptir miklu máli, þ.e. tengsl þessara barna við íslensk börn sem þau eru að kynnast, við jafningja sína og jafnaldra. Í þessu tilliti þá eru til leiðir, t.d. hjá íþróttafélögunum, í tómstundum eða í tónlist, þar sem krakkar á svipuðu reki koma saman, og þar fer oft mikið íslenskunám fram. Við héldum að það væri á einhvern hátt góð staða í skólakerfinu fyrir börn af erlendu bergi brotin að sitja mállaus inni í bekk. En ef við horfum bara á það þá er það ofboðslega mikið álag fyrir kennarana — ég held að kennarar séu með samviskusamasta fólki á landinu — að hafa kannski tvö til þrjú börn í bekknum sem tala ekki íslensku, að vera að kenna eitthvert fag og börnin eru í raun mállaus. Það heftir þau líka í að tengjast félagslega. Það skiptir miklu máli að börnin fái grunn í íslensku. Sá íslenski grunnur og það að ná tökum á tungumálinu veitir þessum börnum aðgang að samfélaginu. Við sjáum það bara að samkvæmt UNESCO, OECD, World Bank og Global Partnership of Education skapar hvert ár í viðbót í menntun, ef þessi börn ná tökum á íslensku, 9% hærri árstekjur fyrir þessa einstaklinga. Sömu stofnanir hafa metið það svo að menntun skapi u.þ.b. helming alls hagvaxtar í heiminum. Þetta skiptir því ofboðslega miklu máli.
Hér hefur verið talað um skóla úti á landi, minni skóla, og alls konar sveitarfélög. Við þurfum að reyna að gæta jafnræðis þannig að öll börn sem koma hingað og hafa ekki tök á íslensku hafi aðgang að sérlega góðri kennslu þar sem bestu sérfræðingar landsins eru við störf. Það er alveg þekkt að kennarar eru missterkir í því að vera með börn af erlendu bergi brotin inni í tímum hjá sér og þau börn geta líka lært af því að heyra íslensku talaða í kringum sig. Það er ágætt. En það verður að vera í einhvers konar blandi við það að þau fái góða kennslu á íslensku í grunninn. Það eru allt of mörg börn, sem hafa meira að segja fæðst á Íslandi, eru sem sagt börn foreldra sem eru af erlendum uppruna, sem tala ekki góða íslensku vegna þess að grunnurinn var ekki almennilega lagður. Þau fengu kannski kennara sem hafði ekki góð tök á þessari kennslu og eftirleikurinn er sá að þau geta tjáð sig á íslensku en tjá sig þannig að þau munu aldrei gera það opinberlega vegna þess að þau skammast sín fyrir íslenskuna sína.
Það skiptir því miklu máli að við séum með einhvers konar samræmingu í því sem er verið að gera. Mér heyrist að í salnum sé ákveðin jákvæðni í garð þessarar tillögu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur og það er gott. Það er nefnilega þannig að ef við ætlum að halda áfram að njóta þess sem Ísland hefur upp á að bjóða, sem við höfum gert í árhundruð, þurfum við að bjóða þeim erlendu börnum sem koma hingað upp á kennslu í íslensku og auðvitað að þau læri inn á menningu og gildi þjóðarinnar og taki þátt í samfélaginu af fullum krafti og fái að gera það. En það er mannlegt ef þau eru ekki með full tök á íslensku — það á líka við um íslensk börn og íslenskt fólk sem talar ekki nógu góða íslensku eða skrifar ekki nógu gott mál að það heldur sig til hlés og er ekki jafn líklegt og aðrir til að koma fram og tjá skoðanir sínar og er þá oft eins og fangi í eigin hugarheimi. Íslenskan, það verður ekki of oft sagt, er góð og við verðum að rækta hana. Og þegar fæðingartíðnin er eins og hún er og við erum að fá fleira og fleira erlent fólk verðum við að horfa fram í tímann og hugsa: Við verðum að bjóða þessu fólki upp á góða íslenskukennslu og við verðum að gera eitthvað í málinu. Á endanum held ég að það sé best að þetta verði allt saman úti í skólunum, í nærumhverfinu. En eins og staðan er í dag er það að ákveðnu leyti happdrætti hvort börn af erlendu bergi brotin fái kennara sem er flinkur í því sem hann er að gera eða kennara sem er kannski bara nýr og óreyndur og ekki jafnöflugur í því að sinna þessum börnum.
Þetta á líka við um það sem við í Sjálfstæðisflokknum höfum rætt um í sambandi við börn á máltökuskeiðinu í leikskóla, þó að ég sé ekki endilega að blanda því inn í. Það tengist samt og ég veit að við erum að vinna í því líka að börn á því skeiði séu böðuð upp úr íslensku. Það hefur verið ákveðið tabú að ræða þessi mál, sérstaklega hjá vinstri flokkum í landinu. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn kom með þá tillögu eða þá aðgerð fyrir kosningar að vera með móttökudeildir og móttökuskóla voru skrifaðar greinar í blöðin gegn því af fólki á vinstri væng stjórnmálanna. En ég held að eins og með margt annað — eins og með símana þegar allir voru á móti því að þeir ættu að fara út úr skólanum — sé fólk komið á þann vagn að símar eigi ekki heima í skólunum. Það er algerlega kominn tími á það að við söfnum mannauðnum saman, fólki sem getur á hagkvæman hátt kennt stórum hópum íslensku þannig að þau börn sem í hlut eiga verði fullgildir íslenskir samfélagsþegnar.