157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.

12. mál
[15:24]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið, þar kom kannski ekki nein bein spurning. Ég átta mig ekki á því hvort ég nefndi orðið mállaus í minni ræðu, ég hélt ekki. (Gripið fram í.) Það myndi ég ekki vilja hafa sagt. En það sem skiptir máli í þessu og það kom vel fram í máli hv. þingmanns að fólk fer alltaf að tala um sitt nærumhverfi. Ég hef ekki heyrt neinn kennara tala um annað en að það sé allt í stakasta lagi hjá honum. Það er allt í stakasta lagi hjá mér. En svo sýna bara rannsóknirnar að við erum langt á eftir nágrannaþjóðum okkar í því að kenna börnum sem eru af erlendu bergi brotin tungumálið okkar. Það er himinn og haf á milli þannig að einhvers staðar er pottur brotinn. Þess vegna getum við ekki haldið áfram í því kerfi sem er augljóslega eins og sigti til að veiða vatn, það rennur allt í gegn. Þetta er ekki nógu gott. Það er algerlega augljóst og það að benda á einstaka kennara sem þetta gengur vel hjá — þeir ættu að vera auðvitað fyrir aðra að læra af, en meðan staðan er þessi þá þurfum við að grípa til ákveðinna róttækra aðgerða í þágu þessara barna. Annað er algert ábyrgðarleysi, það er ábyrgðarleysi að leyfa þessu að reka á reiðanum og börnin útskrifast úr grunnskóla og eru síðan bara stór hluti brottfallshópsins í framhaldsskólum. Þetta er vanvirðing við börn af erlendu bergi brotin. Börn ná miklu meiri árangri t.d. í Noregi, en hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sækir þessa tillögu m.a. til Noregs, og ég segi að það sem við viljum er árangur fyrir þessi börn, alveg eins og fyrir öll önnur börn, hvort sem það kann einhvern veginn að rekast á við einhverja vinstri hugmyndafræði eða ekki. Þetta er eitthvað sem skilar árangri og við verðum í þágu barnanna að þora að stíga þessi skref.