þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir andsvarið. Ég sagði aldrei að það væri allt í himnalagi í mínu umhverfi, ég var bara að benda á að það þarf víðtækari sýn. Þetta er eitt af því sem við þurfum að bæta. En við þurfum líka að skoða fleiri þætti. Þetta verður ekki eingöngu gert í skólanum. Það þarf meira til, samfélagið þarf að hjálpast að, við þurfum öll að leggjast á eitt til þess að sem bestur árangur náist fyrir þessi börn. Við þekkjum og hv. þingmaður örugglega líka dæmi um einstaklinga sem þetta hefur gengið mjög vel hjá og þar sem þetta hefur gengið verr. Það er sárt að horfa á eftir börnum þegar manni finnst þau ekki hafa náð þeirri færni sem þarf til að takast á við næstu verkefni eftir að grunnskóla lýkur. Það að vera með móttökuskóla eða móttökudeildir þar sem er svona stíf kennsla er frábært en það verður að vera í samvinnu við heimaskólana þannig að börnin séu jafnhliða að tengjast skólafélögum og bekkjarfélögum af því þar fer mesta íslenskunámið fram, í jafningjasamveru.