þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar og get tekið undir mjög margt sem hv. þingmaður sagði. Það skiptir miklu máli að þessi börn séu í íslensku málumhverfi sem allra mest og að íslenska sé töluð í kringum þau. Þess vegna nefndi ég í ræðu minni að íþróttafélögin, tómstundir, tónlistarskólar og félagsmiðstöðvar, eins og hv. þingmaður hefur nefnt, eru mjög góðir staðir fyrir börnin að vera í eftir skóla. En mér finnst ákveðin uppgjöf fólgin í því að tala um að þau séu 21% tímans í skólanum og þess vegna sé þetta að einhverju leyti bara erfitt og við séum að varpa þessu frá okkur. Málið er að þessi börn sem um ræðir eru að ákveðnu leyti jaðarsett, þau eiga foreldra sem eru ekki tilbúnir, eða jú, þeir eru vissulega tilbúnir en hafa bara ekki tungumálagetu og oft ekki tengsl inn í íslenskt samfélag til að berjast fyrir börnunum sínum. Þess vegna þurfum við sem erum hér á þingi og fólk úti í skólanum að taka meira utan um þessi börn og hjálpa þeim áfram. Við eigum að tengja saman íþróttafélög, tónlistarskóla, frístundina og félagsmiðstöðvar. Þetta þarf að vinnast með sveitarfélögunum og þetta er hægt. Þá kemur aftur: Já, þetta er hægt og þetta gengur vissulega vel í skóla A en ekki í skóla B, C, svo gengur þetta vel í skóla D en ekki E og F. Þannig að það þarf ákveðna miðlæga stýringu, þrátt fyrir að ég sé maður frelsisins. Þegar um börn ræðir þá þarf miðlæga stýringu til að jafnræðis sé gætt.
Það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hefur borið hér á borð — auðvitað má laga það og breyta því að einhverju leyti, mannanna verk eru ekki fullkomin, en hv. þingmaður hefur metnað, áræðni og þor til að ræða þetta. Fyrir kosningarnar í nóvember voru skrifaðar blaðagreinar gegn þessu máli en ég heyri að það er almennur vilji hér í þingsal til að taka þetta lengra og er það vel.