157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

þekkingarsetur til undirbúningsnáms fyrir börn af erlendum uppruna.

12. mál
[15:30]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka flutningsmanni þessarar tillögu fyrir að taka málið á dagskrá. Hérna er verið að leggja til að stofnað verði þekkingarsetur eða móttökuskóli eða hvað menn vilja kalla það. En fyrst og fremst er mikilvægt, forseti, að vera að ræða þessi mál hér á Alþingi því að hvernig aðlögun þeirra sem hingað hafa flust til landsins gengur skiptir sköpum fyrir einstaklingana og skiptir sköpum fyrir okkur sem samfélag. Þá þarf að leita allra leiða og getur þetta verið byrjunin á einni slíkri leið, því hvernig tekið er á móti börnum með erlent tungumál eða af erlendum uppruna í skólunum er náttúrlega gríðarlega mikilvægt.

Áskoranir og þarfir barna af erlendum uppruna eru náttúrlega gríðarlega ólíkar og misjafnar. Við vitum að langstærstur hluti barna af erlendum uppruna hér á landi er frá Póllandi og síðan koma önnur lönd þar á eftir. Svo er annar hópur sem við höfum náttúrlega í samfélaginu talað oft um líka sem er allt annars eðlis sem eru börn flóttafólks og hælisleitenda sem hér eru komin til landsins og hafa allt annan bakgrunn oft á tíðum og þurfa þá annars konar stuðning. Mér finnst þessi tillaga kannski einmitt bera keim af því að það eigi að fara fram einhver greining á málinu, greining á því hvað við getum gert betur og þá með það í huga að greina stöðu barns þegar það kemur inn í skólann: Hvað er viðkomandi barni fyrir bestu?

Það eru líklega tvö ár síðan ég kom fram opinberlega, þá starfandi hjá Hafnarfjarðarbæ, og var að lýsa því yfir að álagið væri slíkt í skólakerfinu að það gengi ekki lengur. Það gengi ekki lengur að börnum með þessar ólíku þarfir, komandi úr ólíkum aðstæðum og ólíku umhverfi væri, ef nota má þannig orð, bara dembt inn í bekk með engum fyrirvara og ættu bara að spjara sig, auðvitað með aðstoð kennara og annarra. Álagið á kennara í slíkum aðstæðum og álagið á önnur börn er hreinlega óbærilegt.

Þetta er ekki bara spurning um að aðlagast þjóðfélagi og læra íslensku. Þetta er spurning um farsæld barna. Nú vinnum við út frá þeirri stefnu að huga að farsæld barna og ræddum við þessi mál hérna á síðasta þingi við hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, einmitt hvernig hann hygðist grípa til aðgerða til þess að huga að farsæld erlendra barna sem hingað eru komin til lengri eða skemmri tíma, því ef börnin eru ekki gripin strax þá verður erfiðara að taka á málum. Það þarf að grípa börnin strax og veita þeim það utanumhald sem þau eiga skilið til að geta aðlagast því þjóðfélagi sem þau ásamt foreldrum sínum ætla að búa í.

Hér hefur líka verið nefnt hversu mikilvægt er varðandi aðlögun að taka þátt í frístundastarfi og íþróttastarfi og félagsmiðstöðvum og slíku og ég tek heils hugar undir það. Það er gríðarlega mikilvægt. Því er það dálítið áhyggjuefni hversu erfiðlega hefur gengið að fá erlendu börnin, hvort sem þau hafa búið hér til lengri eða skemmri tíma, inn í íþróttastarfið. Það eru vissulega frístundastyrkir sem öll börn eiga rétt á en samt sem áður virðist kostnaður koma í veg fyrir það oft og tíðum hjá foreldrum, sem þurfa að greiða fyrir, og í þessu tilviki er ég að tala um erlendu börnin, og það er eitthvað sem við sem samfélag þurfum hreinlega að taka tillit til. Ég veit að íþróttafélögin sjá í gegnum slíka hluti, hvort sem það er hjá erlendum börnum eða börnum sem koma frá fjölskyldum sem hafa hreinlega ekki efni á að hafa þau í íþróttum — þá eru mörg íþróttafélög sem taka tillit til þess en það á ekki að vera þannig að það sé eitthvað tilfallandi og tilviljunarkennt hvernig tekið er á slíkum málum.

Því nefndi ég þetta fyrir líklega tveimur árum á ársfundi ÍSÍ sem ég ávarpaði, fundi sem haldinn var þá á Ásvöllum í Hafnarfirði, og hvatti íþróttahreyfinguna til að koma til þessa samstarfs við okkur öll, þá var ég að tala um sveitarfélögin en auðvitað okkur öll sem samfélag. Íþróttahreyfingin og ÍSÍ gæti hjálpað okkur við að finna leiðir til þess að ná til allra barna, og þá er ég að tala sérstaklega um þennan gríðarlega aukna fjölda erlendra barna sem hafa flust til landsins, því að það er ofboðslega mikilvægt. Það var tekið vel í þetta þegar ég nefndi þetta en ég hef svo sem ekki séð einhverjar sérstakar aðgerðir. Það má vera að þær hafi farið fram hjá mér en ég vil bara nota þetta tækifæri hérna aftur, a.m.k. tveimur árum síðar, í þessum ræðustóli og hvetja ÍSÍ til að taka sérstaklega utan um þessi börn og fara af stað með eitthvert verkefni og fá aðra með sér í að fá þessi börn inn í íþróttastarf því það er svo ómetanlegt fyrir þau.

Við erum að ræða þessi mál því að við vitum öll að fólki af erlendum uppruna er að fjölga mjög mikið í okkar samfélagi og bara frá árinu 2016, held ég að hafi verið, til ársins 2023 var t.d. í leikskólunum 100% fjölgun erlendra barna á sjö árum og svo hefur aukist síðan og hlutfall erlendra barna fer sífellt hækkandi. Þetta er veruleiki sem við búum við og til þess að börnunum líði vel og þeim farnist vel og að þau aðlagist vel okkar samfélagi þá þarf að taka vel utan um þau allt frá upphafi.

Þetta er ekki bara einhver tilfinning, að börnum sem ekki kunna nógu mikið í íslensku farnist ekki vel og lendi frekar í einhverjum félagslegum erfiðleikum eða verði jaðarsett og þar fram eftir götunum, heldur kom þetta mjög skýrt fram í skýrslu OECD sem var fyrir rúmu ári mikið til umfjöllunar hérna. Þá voru PISA-niðurstöður m.a. ræddar mjög en þar kom mjög skýrt fram, og var mjög dapurlegt en er bara raunveruleikinn, að börn af erlendum uppruna voru að standa sig miklu verr en íslensk börn í PISA og brottfall í þeim hópi var miklu meira og er það gríðarlegt áhyggjuefni. Þegar unglingar sjá ekki fram á að hér séu tækifæri með því að mennta sig og halda áfram á þeirri braut er það náttúrlega alveg grafalvarlegur hlutur.

Þessi ágæta þingsályktunartillaga er í rauninni bara frábær leið til þess að hefja þessa umræðu aftur og finna út úr því hvernig útfærslan verður best úr garði gerð. Er það með því að vera með eina allsherjarþekkingarmiðstöð á einhverjum fjölmennum stöðum eða inni í skólanum eins og t.d. í Hafnarfirði? Af því að það sveitarfélag hefur verið nefnt hérna í dag, þar hafa verið settar upp sérstakar móttökudeildir inni í tveimur skólum sem eru sérstaklega fyrir börn hælisleitenda og flóttafólks. Það er ýmislegt í gangi og með því að hefja samtalið og átta okkur á þessum áskorunum — við eigum ekki að tala um þetta sem vandamál. Þetta eru áskoranir sem við þurfum öll að hjálpast að við, fyrst og fremst með líðan barnanna sem verða fullorðin síðar í huga og farsæld þeirra sem okkur er öllum svo umhugað um.