öryggis- og varnarmál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur kærlega fyrir hennar framsöguræðu og tek það fram að ég tel það vera mína skyldu að vera hér í salnum þegar til umræðu eru mál sem heyra undir málaflokk utanríkismálanefndar, eins og þetta gerir þar sem þetta fjallar um varnarmál og öryggismál. Ég vil líka þakka þingmönnum kærlega fyrir samstarfið sem við áttum í títtnefndum þingmannahópi, þó að mér þyki leitt að við höfum ekki náð sameiginlegri niðurstöðu sem sakir standa.
Ég velti þessu fyrir mér vegna þess að lestur þessarar tillögu og síðan lestur þeirrar tillögu sem þingmannahópurinn stendur að ber ekki með sér að ágreiningur um öryggis- og varnarmál innan lands sé óbrúanlegur. Það væri öðru til að dreifa ef hér væri t.d. mikil andstaða við NATO eða andstaða við veru Bandaríkjahers á Íslandi; þátttöku þeirra í vörnum landsins eða eitthvað slíkt, en svo er ekki. Ætla má að höfundur þessarar tillögu styðji veru Íslands í NATO, sem er vel, og styðji tvíhliða samskipti við Bandaríkin. Mig langar þó að nefna að ég hafði þá tilfinningu í vinnu hópsins að það að nefna Evrópu með einhverjum hætti hafi verið eitthvað sem væri í Miðflokknum viðkvæmt að nefna, sérstaklega samstarf við Evrópusambandið. Þess vegna spyr ég hvort það sé frágangssök að þeirra mati að tala um samstarf við Evrópu og Evrópusambandið þegar kemur að öryggis- og varnarmálum.