157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

öryggis- og varnarmál.

151. mál
[16:06]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Davíðsdóttir) (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir andsvörin og fyrir spurninguna. Þingmaðurinn spyr hvort það að minnast á Evrópusambandið sé frágangssök, en það fer alveg eftir því hvernig hlutirnir eru orðaðir. Ef þingmaðurinn er að vísa til orðalags, samvinnu, samstarfs eða hvers sem það er — það fer alveg eftir samhenginu sem hlutirnir koma fram í í viðkomandi plöggum. Þegar sú sem hér stendur gekk frá vinnu þingmannahópsins 11. júlí síðastliðinn var staðan þannig að það var ekki bara Evrópusambandstexti sem var frágangssök. Ég taldi að það yrði ekki lengra komist í að laga textann í umræddu plaggi til þess að hann gæti orðið grunnur að stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum. Við erum raunar ekki farin að ræða þingsályktunartillöguna sem hæstv. utanríkisráðherra hefur þegar lagt fram en sú tillaga tekur einungis, eins og ég las hana, til hernaðarlegra ógna. Það gengur ekki upp. Það bara gengur ekki upp að mínu viti vegna þess að ógnirnar eru kannski síst hernaðarlegar. Við erum aðallega að tala um fjölþáttaógnir og fyrir mér, eins og þetta kemur mér fyrir sjónir, þá gengur ekki upp að vera með stefnu í öryggis- og varnarmálum sem tekur einungis til hernaðarlegra ógna. Það verður að taka til innra öryggis Íslands.