öryggis- og varnarmál.
Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir andsvarið. Eins og hv. þingmaður veit er ESB, Evrópusambandið, ekki varnarbandalag þó svo að Evrópusambandið hafi verið að teygja sig hin síðustu ár inn á svið öryggis- og varnarmála. Menn geta ímyndað sér hvers vegna það er, kannski vegna þess að það er að reyna að laða til sín ríki á þeim forsendum. Ég svo sem veit það ekki.
Mig langar að nefna eitt þótt við séum ekki að ræða þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra um öryggis- og varnarmál. Hv. þm. Pawel Bartoszek, ef ég tók rétt eftir, sagði að stefnan tæki til fleiri þátta en hernaðarlegra og mig langar þá að lesa fyrir hv. þingmann úr þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra — og nú er ég ekki inni í greinargerðinni heldur í þingsályktunartillögunni sjálfri. Með leyfi forseta:
„Stefnan verði hluti þeirrar heildarmyndar sem þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland felur í sér“ — og hlustaðu nú — „og taki til hernaðarlegra áhættuþátta.“
Hún taki til hernaðarlegra áhættuþátta. Hér er ekki talað um fjölþáttaógnir heldur sagt: hernaðarlegra áhættuþátta. Ég veit ekki hvort þetta eru mistök eða hvað en þetta stendur. Ég er nú bara að lesa það sem hér er og fyrir mér er ekki hægt að samþykkja stefnu í öryggis- og varnarmálum sem tekur einungis til hernaðarlegra áhættuþátta, útilokað.