157. löggjafarþing — 27. fundur,  4. nóv. 2025.

staðfesting Haag-samningsins um gagnkvæma innheimtu meðlags.

180. mál
[16:24]
Horfa

Flm. (Jón Gnarr) (V):

Virðulegi forseti. Mér barst tölvupóstur í sumar og það var kona, amma, sem var að kvarta yfir því að dóttir hennar hefði flutt til Bretlandseyja, eða hún var ekki að kvarta yfir því að hún hefði flutt til Bretlandseyja, en hún sem sagt sagði að dóttirin hefði flutt til Bretlandseyja með tvær dætur sínar með fullu samþykki föður þeirra. Það sem hún var að kvarta yfir var að hún hafði ekki sjálfkrafa fengið greitt meðlag með dætrum sínum og furðaði sig á því að svona gengi ekki sjálfkrafa fyrir sig. Hún sagðist vera búin að ganga á milli Pontíusar og Pílatusar og fengið misvísandi svör. Ég hugsaði að þetta gæti nú ekki verið flókið og bara mikið réttlætismál þannig að ég fór að grafast fyrir um þetta.

Íslenska ríkið innheimtir ekki sjálfkrafa meðlag þegar meðlagsskylt foreldri býr hér á landi en meðlagsmóttakandi býr erlendis. Tryggingastofnun ríkisins greiðir aðeins meðlag til þeirra sem meðlagsákvörðun kveður á um að skuli þiggja meðlag og búsettir eru á Íslandi og því falla greiðslurnar niður við flutning meðlagsmóttakanda úr landi.

Nú þegar er í gildi Norðurlandasamningur um innheimtu meðlaga sem var undirritaður í Ósló 1962 milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar og öðlaðist gildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 93/1962. Framkvæmd samningsins hér á landi er með þeim hætti að meðlagsmóttakandi, sem búsettur er í öðru samningsríki en meðlagsskylt foreldri, sækir um meðlag í búseturíki sem svo sendir beiðni til búseturíkis meðlagsgreiðanda og annast innheimtu.

Ekki eru aðgengilegar upplýsingar um hversu margir meðlagsmóttakendur eru nú í þeirri stöðu að njóta ekki milligöngu hins opinbera við innheimtu meðlaga. Óbreytt fyrirkomulag felur það í sér að áfram verður til staðar hindrun, fyrir fólk sem þiggur meðlag til varanlegra og tímabundinna flutninga milli landa. Kann það að draga úr vilja fólks til að hafa möguleika á að sækja sér nám eða nýta sér önnur tækifæri erlendis.

Haag-samningurinn frá 23. nóvember 2007 um gagnkvæma innheimtu meðlags miðar að því að gera innheimtu meðlags skilvirkari milli aðildarríkja samningsins. Flutningsmenn þessarar tillögu telja að um grundvallarmál sé að ræða sem varðar réttindi fólks til frjálsrar farar. Tillagan hljómar svona, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að fullgilda Haag-samninginn frá 23. nóvember 2007 um gagnkvæma innheimtu meðlags.“

Þetta er bara mjög einfalt og skýrt. Meðflutningsmenn mínir að þessari tillögu eru Eiríkur Björn Björgvinsson, Grímur Grímsson, Guðbrandur Einarsson, Sigmar Guðmundsson, Ingvar Þóroddsson, María Rut Kristinsdóttir og Pawel Bartoszek.