157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:00]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Borist hefur bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 195, um stöðu NEET-hópsins og úrræði í heilbrigðiskerfinu, frá Ingibjörgu Isaksen. Einnig hefur borist bréf frá innviðaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 194, um helmingamokstur, frá Ingvari Þóroddssyni.