157. löggjafarþing — 28. fundur,  5. nóv. 2025.

meðferð sakamála o.fl.

103. mál
[15:42]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Miðflokkurinn telur mjög brýnt að hart sé tekið á skipulagðri glæpastarfsemi og efnahagsbrotum almennt og styður í sjálfu sér frumvarpið og framgöngu þess að mestu leyti. Hins vegar eru í 1. gr. frumvarpsins gerðar verulegar og grundvallarbreytingar á valdheimildum ákæruvaldsins er varða aðgang að trúnaðargögnum og ekki má ráða af umfjöllun nefndar að það hafi verið rætt í þaula. Það má velta því fyrir sér hvort þessi lagabreyting sé tímabær í ljósi þeirra dæma sem streyma nú inn um verulega misnotkun ákæruvalds og lögreglu á valdheimildum sínum þegar kemur að rannsókn einkum og sér í lagi efnahagsbrota. Ég hefði talið hefði farið betur á því að hv. allsherjar- og menntamálanefnd hefði rætt þau mál til þaula og hinkrað með þessa miklu lagabreytingu þar til að (Forseti hringir.) frekari upplýsingar eru komnar upp um þau mál öll og í því ljósi situr Miðflokkurinn hjá við afgreiðslu 1. gr. þessa frumvarps.