fjöleignarhús.
Herra forseti. Þá er það næsta skemmtilega mál hv. velferðarnefndar en ég mæli fyrir hönd meiri hluti velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús. Frumvarpið felur í sér breytingu á ákvæðum fjöleignarhúsalaga um dýrahald.
Í núgildandi lögum um fjöleignarhús er hunda- og kattahald í fjöleignarhúsum háð samþykki ? hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang. Í þeim tilvikum þar sem ekki er um sameiginlegan inngang eða stigagang að ræða er ekki þörf á samþykki annarra eigenda fyrir hunda- og kattahaldi í húsinu.
Með frumvarpi þessu er lagt til að hunda- og kattahald verði framvegis ekki háð samþykki annarra eigenda í fjöleignarhúsum, hvort sem um sameiginlegan inngang eða stigagang er að ræða, og jafnframt að felld verði brott krafa um að tilkynna þurfi húsfélagi skriflega um dýrahald. Þá er lagt til að húsfélög geti enn sett nánari reglur um hunda- og kattahald. Ég vil endurtaka þessa setningu: Þá er lagt til að húsfélög geti enn sett nánari reglur um hunda- og kattahald.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir og minnisblað frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Málið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og hafði nefndin einnig hliðsjón af umsögnum sem bárust þá og var málið afgreitt frá velferðarnefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu 21. maí síðastliðinn, en málið hlaut ekki afgreiðslu. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu var tekið tillit til þeirra breytinga sem meiri hluti velferðarnefndar lagði til í nefndaráliti á síðasta löggjafarþingi. Að öðru leyti er frumvarpið endurflutt óbreytt. Meiri hluti velferðarnefndar telur þær breytingar sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá 156. þingi til bóta. Vísar meiri hlutinn í umfjöllun sína og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti frá síðasta löggjafarþingi.
Nefndin fjallaði um samræmi frumvarpsins við stjórnarskrá, einkum við 71. gr. um friðhelgi einkalífs og 72. gr. um friðhelgi eignarréttar. Í 4. kafla greinargerðar frumvarpsins er fjallað um samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar. Þar kemur fram að frumvarpið þyki ekki fela í sér álitaefni sem kalli á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar. Nefndin óskaði því eftir minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti um hvernig frumvarpið samræmdist stjórnarskrá, annars vegar með tilliti til 71. gr., um friðhelgi einkalífs, og hins vegar 72. gr., um friðhelgi eignarréttar.
Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis til nefndarinnar frá 21. október 2025 er fjallað um þær breytingar á lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994, sem boðaðar eru með frumvarpinu og samræmi þeirra við 71. og 72. gr. stjórnarskrárinnar.
Um samræmi við 71. gr. stjórnarskrárinnar segir í minnisblaði ráðuneytisins að færa megi góð rök fyrir því að undir friðhelgi einkalífs falli einnig rétturinn til að halda sitt heimili eins og hver og einn kjósi, þ.m.t. að halda gæludýr. Við setningu laganna árið 1994 hafi takmörkunin verið réttlætt með vísan til hagsmuna þeirra sem þjáist af ofnæmi líkt og fram komi í nefndaráliti félagsmálanefndar. Framkvæmdin hafi verið ströng og kærunefnd húsamála hafi til að mynda staðfest að eigandi þurfi ekki að færa fram málefnalegar ástæður fyrir synjun á samþykki, sbr. álit í máli nr. 70/2019. Réttarstaðan veiti þannig íbúum sem ekki vilji dýrahald víðtæka vernd en skerði um leið verulega sjálfsákvörðunarrétt dýraeigenda um heimilishald sitt. Tekur ráðuneytið fram að e-liður 2. gr. frumvarpsins um að húsfélag geti bannað hunda- eða kattahald ef dýrið valdi íbúum „verulegum ama, ónæði eða truflun“ eða ef eigandi dýrs brýtur „verulega eða ítrekað“ gegn skyldum sínum sé til þess fallinn að vernda friðhelgi einkalífs og heimilis annarra íbúa sem eiga rétt á að búa við frið og ró í eigin húsakynnum. Þetta sé í samræmi við meginreglu 71. gr. um að takmarkanir á friðhelgi geti verið nauðsynlegar vegna réttinda annarra. Þá geri d-liður 2. gr. frumvarpsins íbúum kleift að koma til móts við aðstæður á hverjum stað og koma til móts við þarfir, t.d. vegna ofnæmis, án þess að útiloka dýrahald með öllu, með setningu húsfélagsreglna.
Um samræmi frumvarpsins við 72. gr. stjórnarskrárinnar kemur fram í minnisblaði ráðuneytisins að friðhelgi eignarréttar hafi tvíþætta þýðingu í þessu samhengi. Annars vegar verndi ákvæðið umráðarétt eiganda yfir séreign sinni, t.d. til að halda gæludýr, og hins vegar verndi ákvæðið rétt annarra íbúa til að njóta sinnar eignar án óeðlilegra truflana. Frumvarpið takmarki rétt þeirra íbúa til að koma í veg fyrir dýrahald í nágrenni sínu en slík takmörkun á eignarrétti verði „að þjóna lögmætu markmiði og gæta meðalhófs“. Í greinargerð frumvarpsins sé vísað til almennra velferðarsjónarmiða og aukins jafnræðis, sem teljist lögmæt markmið.
Í minnisblaðinu kemur fram að meðalhófs sé gætt með því að frumvarpið veiti húsfélögum skýr úrræði til að bregðast við „verulegum ama, ónæði eða truflun“ með sama hætti og gildi um aðra hagnýtingu sameigna og ama sem kunni að hljótast af háttsemi sameigenda, svo sem hávaða og/eða slæmri umgengni. Þar með séu eignarréttindi annarra íbúa tryggð. Þá verði að horfa til þess að óþarflega strangar reglur um dýrahald í lögum um fjöleignarhús geti þannig takmarkað nýtingar- og eignarrétt eigenda íbúða í fjöleignarhúsi og þannig komið í veg fyrir að þeir geti nýtt fasteign sína m.a. til að halda þar gæludýr.
Að mati ráðuneytisins samræmist frumvarpið bæði 71. og 72. gr. stjórnarskrárinnar. Telur ráðuneytið að frumvarpið styrki friðhelgi einkalífs og eignarrétt gæludýraeigenda með því að afnema almennt samþykkisskilyrði. Frumvarpið kveði jafnframt á um skýr og málefnaleg skilyrði fyrir takmörkunum á dýrahaldi sem ætlað sé að vernda sambærileg réttindi annarra íbúa fjöleignarhúsa. Með frumvarpinu sé leitast við að ná jafnvægi milli réttinda einstaklinga til að njóta heimilis síns og eignar og réttar annarra til friðsællar sambúðar.
Meiri hlutinn tekur undir þessi sjónarmið ráðuneytisins og telur frumvarpið feta hinn vandrataða milliveg milli réttinda gæludýraeigenda annars vegar og annarra íbúðareigenda hins vegar. Tekur meiri hlutinn undir að núgildandi reglur laganna takmarki verulega nýtingar- og eignarrétt eigenda íbúða í fjöleignarhúsum hvað varðar gæludýrahald. Er það mat meiri hlutans að hingað til hafi hallað verulega á rétt gæludýraeigenda sem íbúðareigenda í fjöleignarhúsum en með frumvarpinu sé komið á góðu jafnvægi og gætt meðalhófs gagnvart öðrum eigendum sem hafi skýr úrræði samkvæmt frumvarpinu til að bregðast við verulegum ama, ónæði eða truflun vegna dýrs.
Meiri hlutinn telur að umfjöllun um samræmi frumvarpsins við stjórnarskrá hafi verið ábótavant í greinargerð en með minnisblaði ráðuneytisins hafi verulega verið úr því bætt. Mikilvægt sé að greining ráðuneytisins á samræmi frumvarpsins við stjórnarskrá sé nú komin fram.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir nefndarálit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Grímur Grímsson, Jónína Björk Óskarsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.
Herra forseti. Kæru hv. þingmenn. Ég ætla nú ekki að nýta allan minn tíma en vil samt hnykkja á því að húsfélag getur sett reglur um gæludýrahald enda séu þær eðlilegar, málefnalegar og á jafnræði reistar. Fyrir okkur í meiri hlutanum og fyrir ríkisstjórnina er þetta kærkomið frumvarp og við viljum segja bæði fyrir menn og dýr. Nú geta eigendur sammælst um fyrirkomulag gæludýrahalds, svo sem um umgengni og afnot af einstökum hluta sameignar, en girt er fyrir að slíkar reglur gangi svo langt að þær útiloki í raun gæludýrahald. Í þeim tilfellum sem dýrahald tiltekins eiganda veldur öðrum íbúum verulegum ama, ónæði eða truflunum og eigandi dýrs ræður ekki bót þar á, er lagt til í því sambandi að leita þurfi samþykkis ? hluta íbúðareigenda, bæði miðað við fjölda og eignarhluta, í stað einfalds meiri hluta. Hið sama gildi brjóti eigandi dýrs verulega eða ítrekað gegn skyldum sínum þrátt fyrir áminningar húsfélags.
Eins og vitað er hafa margir sem flutt hafa í fjöleignarhús þurft að láta frá sér gæludýr þar sem ekki er leyfi fyrir þeim í húsnæðinu. Harmur sá sem er að fólki kveðinn þegar það er nauðbeygt til að láta frá sér dýrið, sem jafnvel hefur verið hluti af fjölskyldunni árum saman, er þyngri en tárum taki. Nú geta margir glaðst, t.d. þeir sem hafa þurft að berjast fyrir því að fá að hafa gæludýrið sitt í fjöleignarhúsum og þeir sem hafa í hyggju að flytja í fjöleignarhús en hafa kviðið því að láta frá sér ástkært gæludýr sitt, hund eða kött, en til þessara tveggja tegunda nær frumvarpið. Við þekkjum það öll, ýmist persónulega eða hjá vinum og vandamönnum, hvernig gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt, ekki síst hjá þeim sem eru einmana og einangraðir. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á góð áhrif umgengni manna við dýr. Rannsóknir sýna að umgengni við dýr eykur tilfinningalega og líkamlega vellíðan og eykur m.a. sjálfstraust, einbeitingu, athygli og minnkar streituviðbrögð. Dýr veita einstaklingnum vinskap, líkamlega snertingu og sýna áhuga og væntumþykju án mikilla skilyrða. Ást til gæludýrs getur verið djúpstæð. Margir líta á hunda og ketti sem hluta af fjölskyldunni og þá sorg sem nístir þegar gæludýr fellur frá eða er aðskilið frá eiganda sínum þekkjum við mörg, ef ekki af eigin reynslu, þá annarra. Undanfarin misseri hafa þau jákvæðu áhrif sem gæludýr hafa á fólk og samfélag þess orðið sífellt ljósari. Gæludýrahald getur leitt til aukinnar hreyfingar, útiveru og samskipta við annað fólk. Þannig er gæludýraeign almennt talin draga úr félagslegri einangrun og einmanaleika ásamt því að geta átt þátt í því að draga úr streitu, kvíða og þunglyndi.
Ég ætla nú að fara að draga þetta saman hérna þótt ég gæti haldið áfram að ræða þetta enda, eins og ég sagði áðan, eru fjölmargar rannsóknir til sem draga fram nákvæmlega þessar sömu niðurstöður. Það hefur breyst mikið síðustu misseri í þessum málum. Það var sú tíð þegar hundar voru bannaðir í Reykjavík og ef það var vitað af hundi í heimahúsi þá átti að handtaka hann og aflífa. Þetta voru hræðilegar sögur sem voru sannar og það er ekki langt síðan þetta var ef maður hugsar svona í árum. En sem betur fer hefur þetta breyst, reyndar allt of hægt. En nú verður stigið stórt skref.
Ég geri mér fulla grein fyrir því að ekki eru allir sammála og ég veit það bara úr hv. velferðarnefnd að hv. nefndarmenn voru ekki sammála um öll þessi atriði og ég reikna með að nefndarmenn einhverjir komi hér og lýsi sínum skoðunum og það er bara mjög gott mál. Ég vona að umræðan verði málefnaleg og mild því þetta er viðkvæmt mál, viðkvæmt fyrir sumt fólk. En það hafa auðvitað ekki allir sömu skoðanir og ekki allir sömu reynslu og við þurfum auðvitað bara að geta rætt það málefnalega. Ég hlakka til að heyra hvað fólk hefur að segja.