157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum.

[10:47]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Óvissan á fasteignamarkaði er gífurleg og hefur líklega sjaldan verið meiri. Þess vegna fögnuðum við því öll sem eitt þegar fréttir bárust af því að ríkisstjórnin myndi kynna aðgerðapakka í húsnæðismálum í liðinni viku. En það er ekkert sérstaklega ánægjulegt að fá stóran pakka ef innihaldið rýrt. Fagnaðarefni er að stjórnvöld ætli að einfalda regluverk og séu loksins búin að sjá ljósið varðandi séreignarsparnað Sjálfstæðisflokksins og gera hann nú að flaggskipi sinna aðgerða í stað plansins sem áður var keyrt eftir; að leggja úrræðið niður.

Ýmsir aðrir en við í stjórnarandstöðunni hafa orðið til að gagnrýna stefnu ríkisstjórnarinnar, svo sem Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi varaformaður Viðreisnar, Samtök iðnaðarins, Viðskiptaráð og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar. Húsnæðispakkinn leiðir til aukinnar ríkisvæðingar markaðarins. Skattahækkanir á leigutekjur og söluhagnað munu draga úr framboði á almennum leiguíbúðum og hækka leiguverð. Verði áform ríkisstjórnarinnar að veruleika mun opinber stuðningur beinast í stórauknum mæli að leigumarkaði fremur en að styðja við íbúðakaup. Pakkinn mun hafa þær afleiðingar að einstaklingar munu draga úr sínu framtaki á húsnæðismarkaði, einstaklingar munu draga úr fjárfestingum í húsnæði til útleigu og því mun leiguíbúðum á almennum markaði fækka, leiguverð hækka og í kjölfarið hækkar verðbólgan. Auk þess eru engar bráðaaðgerðir í pakkanum, 4.000 íbúða hverfið mun rísa í Úlfarsárdal eftir nokkur ár. Það mun ekki leysa stöðuna fyrir ungt fólk í dag.

Mín spurning til formanns Viðreisnar er þessi: Hvernig samræmast þessi áform um aukin ríkisafskipti, þyngri skattbyrði á venjulegt fólk og hærra leiguverð, stefnu Viðreisnar? Telur ráðherrann í alvörunni að aukin ríkisafskipti séu líklegri til að leysa húsnæðisvanda en frelsi og framtak einstaklinganna?