aðgerðir stjórnvalda í húsnæðismálum.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég geri ráð fyrir að hún eigi eftir að fara betur yfir það hvernig þessi stefna samræmist í raun stefnu Viðreisnar. Augljóslega er hér um að ræða aukin ríkisafskipti og þyngri skattbyrði. Ég vil leyfa mér að vísa til orða borgarfulltrúans Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur þegar hún lýsir í raun yfir að þetta muni í sjálfu sér engu skila. Það verður ekki hægt að sjá það alla vega að þetta muni hafa sérstök áhrif á framboð á húsnæði, alla vega til skemmri tíma. Því vil ég spyrja ráðherrann hvort hún sé ekki sammála mér um að það sé skynsamlegt að vaxtarmörk á höfuðborgarsvæðinu verði útvíkkuð og að aukinn kraftur verði settur í að auka framboð lóða með öllum þeim leiðum sem mögulegt er. En ég vil gjarnan fá að heyra hvernig ráðherrann ætlar að rökstyðja það að hér sé ekki um aukin ríkisafskipti að ræða. Það kemur mér mjög á óvart.