157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

staðan í efnahagsmálum.

[10:55]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég vil beina fyrirspurn minni í dag til hæstv. utanríkisráðherra og spyrja hreinlega hvort ekki sé kominn tími til að stjórnvöld fari að bregðast við þeim vanda sem steðjar að í samfélaginu þegar efnahagslífið og samfélagið á Íslandi hefur fengið hvert höggið á fætur öðru. Svo virðist sem hæstv. ráðherra hafi meiri áhuga á því að feta troðnar sauðagötur Brussel-borgar heldur en að bregðast við ástandinu. Á meðan færist frostavetur yfir íslenskt efnahagslíf. PCC hefur stöðvað starfsemi. Flugfélagið Play er fallið. Samdráttur er í aflaheimildum. Nær 70% starfsemi Norðuráls hafa stöðvast. Fasteignamarkaðurinn er botnfrosinn. Landeldisverkefni ganga hægar en vænst var til og verðbólga fer hækkandi. Vextir eru enn þá allt of háir. Merki eru um aukið atvinnuleysi og ekkert bólar á hagræðingaraðgerð. Þetta er niðurstaðan eftir eitt ár hjá ríkisstjórninni. Ofan á þetta bætist samdráttur í ferðaþjónustu sem hefur verið ein af burðarstoðum þjóðarbúsins. Það virðist sem það sé bara algert stefnuleysi í efnahagsmálum þrátt fyrir öll þessi áföll sem dunið hafa yfir að undanförnu. Það er í rauninni öllum orðið ljóst að verkstjórnin er hreinlega ekki mætt í vinnu. Hefur hæstv. ráðherra ekki áhyggjur af stöðunni?

Spurningin mín er því einföld, virðulegi forseti: Hvar er planið? Hvar og hvenær munum við sjá einhverjar raunverulegar aðgerðir sem taka á ástandinu í dag?