157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

staðan í efnahagsmálum.

[11:00]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég verð eiginlega bara að segja að það er átakanlegt að fylgjast með úrræðaleysinu hérna. Það er verið að vísa í einhverja umræðu á eftir. Hún er fín en hún skilar ekki raunverulegum aðgerðum. Hér er talað um samhenta ríkisstjórn. Ríkisstjórnin ætlaði að leggja fram 87 mál í september og október. Helmingur þeirra hefur litið dagsins ljós. Ég auglýsi hér með eftir hinum helmingnum, hinum 40 málunum.

Almenningur er eðlilega farinn að spyrja sig hvar planið sé. Almenningur horfir á verðmiðann á matarkörfunni hækka. Almenningur horfir enn á svimandi háa vexti af fasteignalánunum sínum. Svo mun verða áfram næstu mánuði. Atvinnulífinu blæðir og það fær hvert höggið á fætur öðru en ríkisstjórnin gerir ekki neitt — ekki neitt. Ríkisstjórnin hefur ekki áhuga á að styðja við fyrirtæki í landinu. Ríkisstjórnin hefur ekki áhuga á að bregðast við vanda hjá fjölskyldum í landinu. Það eina sem þau virðast hafa áhuga á þessa dagana er að vega að landsbyggðinni og jú, að skattleggja. (Forseti hringir.) Þið eruð að skattleggja allt. Það felst ábyrgð í því að stjórna landinu, frú forseti, og mig langar að spyrja aftur: Hvar eru aðgerðirnar? Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera til að bregðast (Forseti hringir.) við ástandinu sem er í gangi í dag?