staðan í efnahagsmálum.
Virðulegi forseti. Samhent ríkisstjórn, skýr sýn, sterkur fjármálaráðherra sem m.a. tekur á þeim málum sem hv. þingmaður bendir hér á. Við erum búin að vera að einfalda regluverk. Við erum búin að vera að auðvelda starfsumhverfi atvinnulífsins. Við erum í góðum samskiptum við atvinnulífið þegar kemur að hagsmunagæslu. Ég óttast að Framsóknarflokkurinn vilji draga úr þeirri hagsmunagæslu en við í ríkisstjórninni munum halda áfram að sinna hagsmunagæslu fyrir íslensk fyrirtæki og íslensk heimili, bæði á erlendri grundu og hér innan lands.
Það skiptir máli að þessi mál séu rædd og mér finnst líka vont ef ég hef skilið hv. þingmann þannig að þessi mál verði ekki leyst af því að þetta verði einhver umræða á eftir.Við erum hér á Alþingi. Það er hér sérstök umræða, m.a. að frumkvæði formanns Sjálfstæðisflokksins. Ég tel fagnaðarefni að ræða þessi mikilvægu mál. Þar mun forsætisráðherra svara spurningum og svo er allt í einu komið hér og sagt að það skipti ekki máli. Það skiptir gríðarlega miklu máli að við eigum einmitt pólitískt samtal um það (Forseti hringir.) og drögum líka fram hvaða aðgerðir hefur verið farið í undir forystu þessarar ríkisstjórnar og við erum rétt að byrja.