157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

fjármál embættis ríkislögreglustjóra.

[11:07]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svörin sem voru að mestu leyti skýr. Hæstv. ráðherra segir að hún hafi fyrst orðið vör við þetta í fjölmiðlum eins og við hin sem segir okkur að þetta mál hefur ekki komið upp við stanslausa skoðun dómsmálaráðuneytisins á fjármálum ríkislögreglustjóra frá því að hæstv. ráðherra tók við embætti.

Þá er það hin spurningin sem hæstv. ráðherra kom ekki inn á: Hefur dómsmálaráðuneytið gengið úr skugga um hvernig þessum málum sé almennt hagað innan stofnana dómsmálaráðuneytisins? Eru einhver fleiri slík mál sem liggja undir og hvenær — af því að ég nefndi hér áðan traust og annað slíkt til lögreglu, sem skiptir máli, þá er einmitt annað sem skiptir líka máli, á hæstv. dómsmálaráðherra von á því að það væri komin niðurstaða í rekstrarmál embættis ríkislögreglustjóra (Forseti hringir.) og lögreglunnar almennt? Af því að nú horfum við fram á mikla hagræðingu innan embættisins miðað við þær skýrslur og minnisblöð sem liggja fyrir.