157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

Staðan í efnahagsmálum.

[11:31]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta alvarlega mál upp og þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin. Það verður að segjast eins og er að sú mynd sem er að dragast upp er ekki bara þessir alvarlegu hlutir í efnahagsmálum heldur er stærsti vandinn í efnahagsmálum okkar Íslendinga afneitun hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnar á stöðu mála. Þetta er fullkomin afneitun. Ef menn halda það að rétta leiðin til að taka á þessu máli sé að vera með kosningaræðu með engu innihaldi og eingöngu fyrirsagnir er það fullkominn misskilningur. Þessi ríkisstjórn tók við fjárlögum sem voru að skila 19 milljörðum í halla eftir Covid og Reykjaneselda, 19 milljörðum. Einhver hefur sagt: Það hlýtur að vera lítið mál að ná endum saman þegar þú ert með 1.600 milljarða. Nei, það var ekki gert. Reglum var breytt. Til hvers? Til þess að þurfa ekki að greiða niður skuldir. Það var komin regla sem var kölluð stöðugleikaregla. Hún er ekki stöðugleikaregla, hún er veik útgjaldaregla. Það var fyllt upp í það strax, ríkisútgjöldin aukin, skattar hækkaðir og það er algerlega skýrt að það á ekki að greiða niður skuldir. Þetta er efnahagsstefna ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Hún tók við góðu búi, lætur eins og ekkert sé að gerast, talar eins og það sé bara hræðilegt að gera það sem þarf að gera, sem er að taka á ríkisfjármálunum. Síðan þurfum við auðvitað að horfast í augu við það að leiðin til að efla atvinnulífið er ekki að koma með nýja skatta. Það hefur aldrei gengið og það mun aldrei ganga.

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu en ég vona að hæstv. ríkisstjórn komi sér til mannheima, (Forseti hringir.) það er gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska þjóð að það gerist.