157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[11:54]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þessi dagur í dag, get ég sagt, er einn af stoltari dögum mínum hér sem varaþingmaður á hinu hv. Alþingi. Í dag fáum við tækifæri til að samþykkja og greiða atkvæði með löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um mál um réttindi fatlaðs fólks. Þetta mál er risastórt. Þetta mál skiptir máli fyrir allt fatlað fólk á Íslandi og allt fólk á Íslandi og ég er mjög stolt af því að vera hluti af meiri hluta og tilheyra þeim flokki sem stendur að ríkisstjórn sem gerir þetta og framkvæmir þetta loksins. Samfylkingin stendur stolt með þessu frumvarpi. Samfylkingin stendur stolt með þessari löggildingu þannig að við munum segja já.