157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

106. mál
[11:59]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta mál hefur verið mikið rætt, vandlega og ítarlega, og við höfum fengið til okkar í hv. velferðarnefnd fjölda gesta. Gestir og umsagnir skiptust reyndar talsvert í tvennt, annars vegar má segja að nokkurn veginn helmingurinn hafi verið yfir sig glaður og hamingjusamur og ekki getað beðið eftir að þetta mál kláraðist á meðan hinn helmingurinn hafði þessar áhyggjur sem hafa verið reifaðar af minni hlutanum í nefndinni. Við í ríkisstjórninni erum stolt af þessu máli. Það er loksins komið að því, það fer að líða að stóru stundinni. Grundvallaratriðið er að leiðrétta réttarstöðu fatlaðs fólks og að tryggja hana og þá á ég við bæði stöðu fullorðinna og barna, sem við skulum ekki gleyma að tilheyra þessum hópi einnig. Það er komið að því að lögfesta samninginn eftir öll þessi ár sem fólk er búið að bíða, enda stóð það ávallt til hjá fyrri ríkisstjórnum að klára þetta mál. Það var ekki gert og það verður klárað núna.