stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir þessa framsögu og þakka henni fyrir að koma með þessa þingsályktunartillögu hingað inn með þeim hætti sem hún gerði. Ég er þeirrar skoðunar að það sé líklegra til þess fallið að viðhalda þeim, svona að mestu, þverpólitíska stuðningi við þessa vinnu, að koma með þetta eins mikið óbreytt frá skýrslu hópsins og hér er gert og vona mjög einlæglega að okkur farnist vel á þessu þingi að fjalla um þetta af vandvirkni og ábyrgð í samræmi við þær kröfur sem við eigum að gera til okkar sjálfra.
Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra, ekki til þess að vera útsmogin pólitískt heldur bara einlæglega, varðandi áform um að uppfylla 1,5% í varnartengd útgjöld. Vissulega mun það þýða að við munum geta talið einhver útgjöld með sem við erum með í dag en teljum ekki til beinna varnartengdra útgjalda en gætum sett undir þetta. En hvernig sem það á endanum mun líta út er ljóst að þetta kallar á mikil ný útgjöld. Að hluta til held ég að hægt verði að samþætta það við aðrar áætlanir og eitthvað sem er svona þannig séð fyrirséð eða pólitísk sátt um að fara í og hefur sannarlega þann tilgang að auka viðnámsþrótt og öryggi okkar hér. En ég held að það muni hins vegar líka kalla á alvörupólitíska umræðu þar sem við munum öll þurfa að færa einhverjar fórnir og gera málamiðlanir, hvernig sem við náum því fram. Mig langaði bara að biðja hæstv. ráðherra, hvort hún gæti aðeins viðrað það hvernig hún sér það fyrir sér. Það þarf að breyta skipuriti í fjárútlátum en líka mögulega að fara í einhverjar umbreytingar á eignum. Önnur lönd hafa verið að hækka skatta eða skera niður til velferðarmála o.s.frv. og þótt við séum ekki að fara í 3,5% þá eru þetta samt ný útgjöld fyrir okkur.