stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég vil bæta því við að ég finn ekki annað en að fulltrúar í hópnum sem standa að skýrslunni hafi fullan vilja og metnað og líti á það sem sitt ábyrgðarhlutverk að halda áfram þessari vinnu og ég trúi því einlæglega að það geti raunverulega skipt sköpum að viðhalda þessari þverpólitísku nálgun og samstöðu eins lengi og langt og við mögulega getum vegna þess að málaflokkar til að rífast um eru margir, en þetta á ekki að vera einn af þeim. Það þýðir ekki að við getum ekki haft ólíka pólitíska nálgun á því hvernig við náum markmiðunum, en það að þessi þingsályktunartillaga sé komin fram, sem byggir á þessari skýrslu þar sem það er kortlagt og stafað út hvað það er sem þarf að gera og helstu áherslur, er gríðarlega mikilvægt. En auðvitað fer það allt eftir því hvað við gerum síðan við þetta plagg. Í hvaða aðgerðir förum við, hver er forgangsröðunin og hvernig vinnum við þetta saman? Ég segi fyrir mitt leyti, og leyfi mér að ætla að það eigi við um þann þingflokk sem ég er fulltrúi fyrir, að við tökum þessu alvarlega. Við viljum vera ábyrg í þessu og það mun þýða að við munum þurfa að eiga pólitískt samtal um það hvernig við náum þessum markmiðum. Það er lykilatriði fyrir okkur að segja það eins oft og við getum að þetta snýst ekki eingöngu um kröfur sem aðrir gera til okkar heldur þær kröfur sem við gerum til okkar sjálf. Það fylgja því ekki bara réttindi að vera fullvalda og sjálfstæð og skora hæst á listum yfir samfélög sem geta boðið borgurum sínum upp á alvörulífsgæði og lífskjör. Því fylgja líka skyldur. Frelsið kostar og það mun kosta meira núna en það hefur kostað í marga áratugi. Það er ekki að fara að breytast og við verðum sem samfélag vera tilbúin að borga þann kostnað sjálf.