stefna í varnar- og öryggismálum.
Frú forseti. Ég var nú ekki að lýsa beinum vilja til þess að koma aftur inn í þennan samráðshóp þannig að því sé haldið til haga. Að sjálfsögðu tökum við þátt í þessari vinnu sem hér fer fram, enda er það stefna Íslands í öryggis- og varnarmálum sem skiptir öllu máli og miklu frekar en einhverjar skýrslur sem unnar eru.
Mig langaði varðandi 12. og 13. lið í þingsályktunartillögunni sérstaklega að biðja hæstv. utanríkisráðherra að fara yfir hvað átt er við þegar verið er að tala um ábyrgð og heimildir stjórnvalda, og síðan í 13. liðnum, um stofnanaumgjörð varnarmála. Það sem ég hef óttast — við munum öll eftir því að hér var stofnuð Varnarmálastofnun nokkru eftir að bandaríska herliðið fór héðan árið 2006. Hún var lögð niður 2010. Mér hugnast ekki að stofna einhverja sérstaka einingu, eins og sagt er í greinargerðinni, eða batterí sem heyrir undir utanríkisráðuneytið og á að taka yfir tiltekin verksvið. Við þurfum ekkert fleiri stofnanir. Er ekki betra, hæstv. utanríkisráðherra, að styrkja umgjörðina sem við höfum í dag frekar en að vera að íhuga að stofna einhverjar sérstakar einingar sem heyra undir utanríkisráðuneytið?
Ég hef verið í Stjórnarráðinu í allmörg ár og þekki alveg að það eru ákveðnar landvinningastefnur í gangi. Ég vil mjög gjarnan ef það er einhver landvinningastefna í gangi að hún verði þá aðskilin þessari vinnu þannig að við getum fengið hér sátt (Forseti hringir.) um stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum. Engar nýjar stofnanir.