157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[13:08]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér í dag nýja stefnu í öryggis- og varnarmálum sem lögð er fram af hæstv. utanríkisráðherra. Eins og fram hefur komið á stefnan rætur að rekja til vinnu þverpólitísks þingmannahóps sem skipaður var fulltrúum allra flokka sem eiga sæti á Alþingi. Þetta var snörp vinna en vönduð. Við fengum sérfræðiálit frá valinkunnum fræðimönnum, heimsóttum höfuðstöðvar NATO og hittum fastafulltrúa margra bandalagsríkja sem og marga aðstoðarframkvæmdastjóra NATO. Við funduðum með æðsta yfirmanni hermála NATO, SACEUR, og ég vil nýta tækifærið og þakka öllum í hópnum fyrir gott og faglegt samstarf.

Þótt vinnan sé tímabær er hún kannski ekki komin til af góðu einu. Það geisar stríð í Evrópu eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu og bandalagsríki okkar verða fyrir ögrunum, skemmdarverkum og markvissum árásum á mikilvæga innviði. Í þessu ástandi hefur krafan um að ríki setji meiri þunga í eigin varnir orðið sterkari, bæði vegna kröfu Bandaríkjanna um að Evrópa taki ríkari þátt í eigin kostnaði við að verja sig en líka vegna eigin áhættumats. Maður fann það þegar við í utanríkismálanefnd fórum og heimsóttum bæði Pólland og Litáen að umræðan er kannski aðeins ólík eftir því hvar maður er staddur í álfunni en alla vega í þeim löndum var kröfu og áskorun Bandaríkjanna um að ríkin alls staðar í álfunni eyði meira fé til varnar ekki illa tekið. Þetta hefur gjörbreytt hinu pólitíska landslagi víða um heim. Bæði Finnland og Svíþjóð eru nú komin inn í NATO, Danir hafa fellt niður undanþágu varðandi þátttöku sína í varnarmálahluta ESB og hér á Íslandi hefur stuðningur við veru Íslands í NATO, bæði hér á þingi og meðal almennings, líklega sjaldan mælst jafn hár.

Virðulegur forseti. Markmið stefnunnar er skýrt: Að tryggja sjálfstæði okkar, fullveldi, lýðræði, öryggi innviða og samfélagsgerðar. Við gerum þetta í samvinnu við aðrar þjóðir og rétt er að árétta að við erum og verðum áfram herlaus þjóð, en þótt við séum herlaus og verðum herlaus þá berum við, íslensk stjórnvöld, ábyrgð á því að tryggja varnir landsins. Stundum er vitnað í danska stjórnmálamanninn Mogens Glistrup sem sagði að varnir Danmerkur ættu að felast í símsvara sem myndi endurtaka orðin „við gefumst upp“ á nokkrum vel völdum tungumálum. Ja, það fer eftir ýmsu og kannski mótast þessi afstaða sumra af þeirri reynslu sem við sjálf höfum orðið fyrir, að vera hernumin. Þau ríki sem hernámu Ísland voru vinveitt ríki, Bretland og Bandaríkin, sem komu hingað í hernaðarlegum tilgangi einungis, ekki til að innlima okkur eða skipta um þjóð í landinu, ekki til að útrýma menningu okkar og tungu eða ásælast okkar auðlindir. Við komum vel út úr þessu, urðum sjálfstæð í kjölfarið og byggðum okkar velmegun m.a. á Marshall-aðstoðinni en það er ekki endilega víst að þetta séu dæmigerð örlög þjóða sem lenda undir erlendu hervaldi. Sagan geymir því miður mörg annars konar dæmi. Vandinn í þessari umræðu eins og mörgum umræðum þar sem neikvæðar afleiðingar geta verið mjög ólíklegar en mjög afdrifaríkar er að maður er annaðhvort álitinn klikkaður eða maður er orðinn of seinn. Punkturinn er sá að við getum ekki treyst á von, guð og lukku. Þess vegna setjum við fram þessa stefnu sem byggist á að við vinnum okkar eigin heimavinnu og eflum um leið samskipti okkar við bandalagsþjóðir okkar.

Varðandi okkar heimavinnu: Við eigum að tryggja stigvaxandi fjármagn til varnartengdra verkefna og innviða. Ég er t.d. að tala um Landhelgisgæsluna sem er ein okkar mikilvægasta stofnun, stofnun sem nýtur mikils trausts almennings. Við getum bætt getu okkar til að hafa eftirlit með okkar svæði með skipum, flugvélum, mannlausum kafbátum, með því að passa upp á loftvarnakerfi okkar til að gæta okkar landhelgi og hafa eftirlit með mikilvægum innviðum á borð við sæstrengi og til að tryggja við séum gott gistiríki fyrir þá sem starfa með okkur að vörnum landsins. Við eigum að efla okkar leitar- og björgunargetu. Það er öryggismál en það er líka varnarmál. Það tryggir öryggi fólks sem er að vinna á hafi úti og líka þeirra sem taka t.d. þátt í heræfingum eða loftrýmisgæslu hér við landið. Þetta er dæmi um skynsamlega fjárfestingu í tvíþátta notum, þ.e. fjárfestingu sem getur jafnt nýst í varnartengdum og borgaralegum tilgangi.

Ég hef líka talað fyrir því að við eigum að efla greiningargetu okkar til að hafa sjálfstæða getu til að greina ógnir og möguleg njósnaumsvif hér á landi, til að geta metið hættu á netárásum, hættu á tilraunum til að beita upplýsingaóreiðu sem vopni, til að meta hættu á hryðjuverkum og til að hafa síðan getu til að bregðast við þeim ef þörf krefur, t.d. með öflugri sérsveit. Við þurfum líka að byggja upp drónavarnir og svona mætti lengi telja. Þetta eru allt saman dæmi um fjölþáttaógnir og í Evrópu hafa þessi mál oft lent á borði lögregluyfirvalda. Þess vegna er gott að við eigum þegar í víðtæku samstarfi og erum í raun aðilar að stofnunum ESB á borð við Schengen, Frontex og Europol, sem gerir okkur kleift að taka þátt í að takast sameiginlega á við þessar áskoranir.

Þegar kemur að alþjóðlegum vinkli stefnunnar vil ég nefna þrjú grundvallaratriði. Í fyrsta lagi aðild okkar að NATO, öflugasta varnarbandalagi heims, sem veitir okkur sameiginlegar varnarskuldbindingar samkvæmt 5. gr. sáttmálans. Hér er ekki um stefnubreytingu að ræða en ég vil halda því til haga að NATO-samstarfið er öflugt og traust. Bandaríkin voru að kalla eftir auknum framlögum. Þau mál hafa leyst. Viðskipti á milli Evrópu og Bandaríkjanna hafa komist í góðan farveg með gerð samninga milli ESB og Bandaríkjanna annars vegar og ESB og Bretlands hins vegar. Í öðru lagi vil ég nefna tvíhliða samstarf við Bandaríkin, öflugasta herveldi heims, á grundvelli varnarsamnings frá 1941 sem hefur reynst okkur vel og í þriðja lagi vil ég nefna aukið samstarf við fleiri líkt þenkjandi þjóðir. Gerð tvíhliða yfirlýsingar við Finnland og Þýskaland er mikilvægur partur í því og þá er rétt að nefna Evrópusambandið í þessu samhengi og það mikilvæga samstarf sem við eigum t.d. þar í gegnum Schengen og Frontex og Europol en öryggi okkar landamæra og samstarf í löggæslumálum er órofa hluti af vörnum okkar allra. Þá tel ég líka vera sóknarfæri í efnahagslegu samstarfi við þjóðir á meginlandinu.

Virðulegi forseti. Ég fagna því að okkur hafi auðnast að setja fram tillögu að stefnu í varnar- og öryggismálum sem fulltrúar flestra þingflokka gátu fellt sig við. Mál sem þessi, sem varða þjóðaröryggi okkar, ber að reyna að afgreiða í eins breiðri sátt og hægt er. Það er í sjálfu sér þjóðaröryggismál líka. Við höfum séð hvernig ytri aðilar nota klofning og ágreining til að ala á ótta og sá fræjum efasemda í samfélaginu, stundum í mjög fjölbreyttum málum. Tilraunir til að grafa undan trausti á stjórnmálum eða heilbrigðiskerfinu eða félagslega kerfinu geta verið hluti af þessum fjölþáttaógnum. Ég tel að þeir punktar sem hafa verið nefndir í tengslum við stefnuna sem ástæða efasemda séu ekki óbrúanlegur ágreiningur. Öðruvísi væri t.d. farið ef hér væru flokkar sem vildu ekki sjá okkur í NATO eða vildu ekkert með Bandaríkin hafa. Það virðist ekki vera raunin þannig að ég lýsi mig reiðubúinn og hvet okkur öll til dáða til að ná sem breiðastri sátt um varnarmál. Í því felst líka vörn og fæling. Ef allir flokkar á Alþingi kæmu saman og segðu: Við erum ekki sammála um allt en gangi ykkur vel að sundra okkur þegar kemur að fullveldinu, lýðræðinu og öryggi borgaranna, (Gripið fram í: Heyr, heyr.) yrði það eitt öflugasta framlag okkar þingmanna til varna landsins.

Forseti. Ég hef lokið máli mínu.