157. löggjafarþing — 29. fundur,  6. nóv. 2025.

stefna í varnar- og öryggismálum.

215. mál
[13:23]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil nota tækifærið í síðara andsvari til að koma aðeins inn á spurningar sem hv. þingmaður spurði um í fyrra andsvari varðandi varnir gegn hvers kyns upplýsingaóreiðu og árásum á lýðræðislegar stofnanir. Það er reyndar athyglisvert að það ríki í Evrópu sem hefur líklegast gengið hvað lengst og náð um leið hvað mestum árangri í þessu er Moldóva sem hefur farið í gegnum nokkrar kosningar í röð þar sem vitað er að Rússar hafa eytt góðum hluta vergrar landsframleiðslu Moldóvu til þess að reyna að hafa áhrif á niðurstöður kosninga. Þeir hafa beitt mörgum aðgerðum og margar þeirra myndu kannski þykja harkalegar. Þær eru þess eðlis að mér fyndist mjög óheppilegt að boða neitt slíkt eða ljá máls á slíku ef við teljum ekki verulegar líkur á því að á þeim þyrfti að halda. Þarna hafa menn bannað frambjóðendum að bjóða sig fram, þarna hafa menn reynt að loka á ákveðnar vefsíður í mjög miklum mæli og þarna hefur fólk farið mjög margar lagalegar leiðir til að koma í veg fyrir að fólk beinlínis kaupi og selji atkvæði sín. Það hafa verið búin til öpp þar sem fólk setur upp reikningsnúmerið sitt, fer með kjörseðilinn sinn og fær síðan greitt. Þannig aðferðum hafa Rússar beitt til þess að reyna að hafa áhrif á niðurstöður kosninga í Moldóvu. Sem betur fer höfum við ekki orðið vör við neinar slíkar beinar aðgerðir hér, það eru tilraunir í mörgum löndum en svona beinar aðgerðir hafa ekki verið nema kannski í Moldóvu og nokkrum öðrum ríkjum. Ég myndi því kannski ekki leggja til að við myndum fara í mjög mikla vinnu og umræðu til að reyna að byrgja þann brunn fyrir fram vegna þess að það getur í rauninni skapað meiri upplýsingaóreiðu og ótta en ástæða er til, en ég bara nefni dæmi um að sum ríki hafa þurft að grípa til nokkuð harkalegra aðgerða til að verja fullveldisákvörðunarrétt sinna þjóða.