stefna í varnar- og öryggismálum.
Virðulegur forseti. Mig langar að byrja á því að þakka kærlega fyrir að þessi stefna skuli vera komin fram og ekki síst fyrir þessa umræðu sem er bæði mjög áhugaverð og upplýsandi en hún er líka mjög góð bara inn í kennslubækur framtíðarinnar, svo ég taki það sérstaklega fram. Þessi stefna er mikilvæg á mjög margan hátt og ástæða þess að ég kveð mér hljóðs er sú að þetta kemur að okkur með mismunandi hætti og mismunandi reynsluheimi eins og við höfum fengið að heyra hér í ræðum.
Mig langar að nálgast þetta úr tveimur áttum, í fyrsta lagi vegna minnar persónulegu reynslu úr mínu fyrra starfi sem bæjarstjóri á Akureyri, þar sem ég átti í samskiptum bæði við erlenda sendifulltrúa og vegna öryggismála sem snúa að þjónustu við borgarana og ekki síst við gesti og þá er ég að tala um ferðamenn. Á þeim tíma vorum við á Akureyri að velta fyrir okkur öryggismálum fyrir norðan okkur með allan þennan fjölda skemmtiferðaskipa sem voru að sigla í kringum landið, hvernig við í ósköpunum við ætluðum að bregðast við ef eitthvað myndi gerast, bæði varðandi heilbrigðisþjónustu en ekki síst bara öryggisþjónustu, svona lítið sveitarfélag og lítið landsvæði, fámennt, að takast á við það að allt að 3.000, jafnvel 4.000, 5.000 manna skemmtiferðaskip myndi einfaldlega fara hér niður eða eitthvert óhapp myndi verða eða olíuslys o.s.frv. Við höfðum verulegar áhyggjur af þessu en við gátum ekki horft í sjálfu sér á neina öryggisstefnu sem stjórnvöld höfðu unnið að og maður vissi í rauninni sáralítið hvert ætti að leita. Meðal annars þess vegna fagna ég því að hér sé komin stefna sem hægt er að horfa til og skiptir okkur miklu máli, þ.e. alla í stjórnsýslunni, fyrir utan náttúrlega að þetta á við um alla Íslendinga.
Á þessum tíma sóttu, eins og ég sagði áðan, mörg erlend ríki og margir erlendir sendifulltrúar okkur heim. Það er alveg þekkt, fólk þekkir það bæði úr fréttum og sögunni, að Kínverjar höfðu mikinn áhuga á Norðurlandi á þessum tíma. Sú umræða var mjög hávær og það gerðist margt á þessum tíma líka varðandi siglingaleiðina yfir norðurpólinn. Við tókum m.a. á móti Snjódrekanum sem var risaskip sem sigldi hér yfir, eitt af þeim fyrstu sem sigldu beint yfir norðurpólinn og við vorum í rauninni pínulítið barnaleg í því hvernig við áttum að taka á móti slíkum aðilum og hversu opin við vorum í rauninni fyrir því að hlusta, það er eðlilegt að hlusta, og hvernig við ættum að bregðast við þegar Kínverjar voru að sýna okkur þennan áhuga. Það var iðulega þannig, svo ég taki það bara úr mínum reynsluheimi, að um leið og erlend ríki birtust hér, hvort sem það var Rússland á þeim tíma eða Kína, þá komu Bandaríkjamenn einnig og vildu gjarnan fá að eiga samtal við okkur. En þetta var rosa skrýtið fyrir ungan óreyndan bæjarstjóra, að þurfa að takast á við þetta með enga stefnu og enga sýn á þeim tíma, að mér fannst, varðandi málefni norðurslóða eða yfir höfuð í öryggismálum og ég tala nú ekki um í varnarmálum.
Á þessum tíma hafði ég, svo ég taki nú eitt lítið dæmi að lokum, samband við bandaríska sendiráðið sem endaði með því að í heimsókn kom til okkar hershöfðingi frá NATO, sem var staðsettur í Noregi, til þess að upplýsa mig um það hvernig í rauninni þessir hlutir væru hér fyrir norðan land og hvað við værum að glíma við. Ég gleymi aldrei þessum fundi sem við áttum vegna þess að ég hafði ekki gert mér grein fyrir því hvað er í rauninni að gerast í hafinu fyrir norðan okkur og í kringum Ísland, að fá lýsingar á öllum þeim kafbátum og hernaðaraðgerðum sem ekki höfðu verið í rauninni almennt ræddar og fá upplýsingar um það. Það var athyglisvert að fá þær frá erlendum stjórnvöldum en ekki í rauninni að eiga það samtal við íslensk stjórnvöld um það hvernig væri réttast að bregðast við. Til að loka þessum hluta ræðu minnar þá þakka ég kærlega fyrir þessa stefnu og við þurfum auðvitað að vinna með hana áfram. Ég legg áherslu á það, eins og hér hefur reyndar komið fram í ræðum annarra hv. þingmanna, að við tökum þetta samtal við stjórnsýsluna í heild sinni og ekki síst við sveitarfélögin.
Ég ætla að fá að nálgast þessa umræðu líka út frá því að ég er formaður Íslandsdeildar Þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál. Ég fagna því einnig að í þessari skýrslu er mjög vel fjallað einmitt um þá samvinnu sem við eigum við aðrar þjóðir í gegnum Norðurskautsráðið og svo auðvitað vinaþjóðir okkar í Skandinavíu um varnar- og öryggismál á norðurslóðum og það styrkir trú manns í því að við séum að gera mjög góða hluti. Eins og ég hef sagt hér m.a. í ræðu er horft til okkar, reynslu okkar, þekkingar okkar, ekki síst hvað varðar málefni norðurslóða. Þess vegna er svo mikilvægt að þeim þætti sé gefinn sérstakur gaumur í skýrslunni og því ber að sjálfsögðu að fagna sérstaklega vegna þess að hér er einmitt nefnt líka það sem ég var að koma inn á varðandi fyrri reynslu mína um samskiptin m.a. við Rússland og Kína, það eru að eiga sér stað hlutir sem snúa ekki síst að Rússum þar sem þeir eru að í rauninni að efla sig hernaðarlega. Þá skiptir auðvitað máli að við höfum einhverja yfirsýn yfir hvað þar er í gangi og þá með okkar bandalagsþjóðum, við séum þá líka undir það búin hvernig við ætlum þá að bregðast við. Þá skiptir líka máli að eiga ekki bara samskipti og góð samskipti við þjóðir sem eru innan Norðurskautsráðsins heldur líka utan þess. Þar ber auðvitað að nefna sérstaklega Evrópuþjóðir eins og Bretland, Frakkland, Þýskaland og Holland eins og hér er nefnt í skýrslunni.
Svo langar mig bara að nefna það að lokum að mikið og gott samstarf vestur um haf, bæði gott samstarf við Bandaríkjamenn en ekki síður við Kanadamenn, skiptir okkur líka máli vegna þess að þegar við þurfum að bregðast við þegar kemur að öryggismálum þurfum við að leita aðstoðar og stuðnings frá nágrannaþjóðunum okkar. Þar eru Kanadamenn meðal okkar helstu bandamanna þannig að það er gríðarlega mikilvægt að við horfum bæði til austurs og vesturs hvað það varðar, ég á að sjálfsögðu við austur til Evrópu, og þann stuðning sem við munum njóta þar. Ég held að ég sé ekki að gleyma í sjálfu sér neinu hér sem ég ætlaði að koma á framfæri en kem þá bara aftur upp síðar en ítreka þakkir mínar fyrir þessa skýrslu og þessa mikilvægu vinnu sem hefur verið unnin.