stefna í varnar- og öryggismálum.
Fyrst vil ég bara segja að ég held einmitt að hér á þinginu, svo horft sé til pólitískrar sögu landsins, sé bara óvenjulegt og klárt tækifæri til að ná fullkominni samstöðu um þetta. Ég held að hluti af þeirri skýringu sé það að í hinum breytta heimi, með meiri ógnum, þá hafi flokkar sem eru samstiga hvað þetta varðar verið kosnir hingað inn. Þótt það ætti að vera sjálfstætt kosningamál í sjálfu sér held ég að það blundi bara í öllum, alla daga, að ástandið í heiminum sé viðsjárvert. Ég held til að mynda að flokkar sem hafa talað um að við eigum að ganga úr NATO eða vera einfaldari í nálgun okkar til varnar- og öryggismála hafi ekki fengið stuðning, m.a. þess vegna. Hér á þinginu er alla vega, að ég held, nokkur samstaða um þessi mál og því er þetta auðveldara fyrir vikið.
Ég var einmitt að fjalla um það í ræðu minni sem hv. þingmaður var að vísa til, ESB og einhverra deilna um það. Ég sagðist einmitt hafa haft áhyggjur af því, þegar vinnan hófst í þessum hópi, að það væri búið að hæpa — afsakið, frú forseti — eða ýta undir þá hugsun að hér væru varnar- og öryggismál í einhverjum ólestri og við þyrftum á Evrópusambandinu að halda. Í ljós kemur að svo er ekki. Varnar- og öryggismál okkar eru í þeim farvegi sem þau hafa verið í síðastliðin 70–80 ár. Þau eru það. Það að við séum síðan að setja fram pólitískar yfirlýsingar við Evrópusambandið eða Þýskaland eða jafnvel Nýja-Sjáland og Kanada eða eitthvað slíkt er bara fínt. Evrópusambandið er að gera slíka samninga við Nýja-Sjáland, Ástralíu, Kanada, það er fínt. Það gerði þá við Norðmenn fyrir nokkrum árum. Norski fulltrúinn sagði í heimsókn okkar: Nei, þetta breytir engu en það er gott að hafa pólitíska yfirlýsingu. Ég segi því bara: Höldum þessari umræðu frá. Höldum okkur við kjarnann. Kjarninn er NATO, varnarsamningurinn (Forseti hringir.) og svæðisbundið samstarf.