stefna í varnar- og öryggismálum.
Forseti. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að sú stefna sem hér liggur fyrir í öryggis- og varnarmálum sé rétta leiðin fyrir Ísland til að tryggja varnir sínar. Það er alveg rétt, sem fram hefur komið, að hún verður að njóta trausts þvert á alla flokka. Ég sé ekki betur en að það hafi svo sannarlega verið reynt. Ég ætla að verja tíma mínum hér í dag í það sem við sem sjálfstætt fullvalda ríki um ókomna tíð eigum að leggja áherslu á til að tryggja öflugar varnir og viðnámsþrótt. Það verður heldur ekki horft fram hjá því, ég tek undir það sem fram hefur komið, að varnarsamningur okkar við Bandaríkin og þátttaka í Atlantshafsbandalaginu eru meginstoðir íslenskrar varnarmálastefnu. Það er staðreynd og um það verður ekki deilt. Hitt er annað mál að við megum líka og eigum að ræða samstarfsáætlanir okkar í formi tvíhliða samstarfs. Ég nefni hér auðvitað Evrópusambandið sem hvað sem öðru líður er mikilvægur samstarfsaðili. Mig langar líka að nefna vaxandi samstarf á meðal Norðurlanda. Allt það samstarf er til þess fallið að stórefla hlutverk okkar og getu til að vera öflugur bandamaður.
Bara til að nefna fyrst Norðurlandasamstarfið þá er í tillögunum komið inn á að norrænt varnarsamstarf, NORDEFCO og þátttaka Íslands í sameiginlegri viðbragðssveit JEF, verði öflug viðbót við NATO og varnarsamninginn við Bandaríkin. Samvinna okkar við félaga á Norðurlöndunum er til þess fallin að auka verulega skilning og dýpt og þekkingu á svæðisbundinni áhættu á norðurslóðum, á Norður-Atlantshafi, og þá þekkingu þurfum við að dýpka og við þurfum að dýpka hana hratt og örugglega. Við þurfum öll að vera fljót að læra. Þetta samstarf er algjör lykill að því að tryggja hraðari viðbrögð hér á landi og sameiginlega getu meðal vinaþjóða vegna þess að við gerum ekkert ein. Ég geri mér grein fyrir því að öflug staða okkar sem gistiríkis er mikilvæg en við eigum mjög mikið inni þegar kemur að stöðu okkar sem virks þátttakanda. Við eigum líka að leggja á það áherslu að vera einhver sem getur lagt eitthvað á borðið.
Ég hef í þátttöku minni í starfi Norðurlandaráðs, sem formaður Íslandsdeildar, setið í forsætisnefnd Norðurlandaráðs sem er æðsti samráðsvettvangur Norðurlandaráðs milli þinganna sem haldin eru ár hvert. Mér finnst rétt að geta þess, og þetta vita sennilega margir, að ekki er langt síðan ekki var rætt um öryggis- og varnarmál á þessum vettvangi. Á því hefur orðið alger viðsnúningur eftir innrás Rússa í Úkraínu og eftir inngöngu Svía og Finna í NATO. Þó að tilefnið sé ekki gott verðum við að fagna því að við séum öll með hausinn á sama stað í þessu máli. Ég sótti sérstakt þemaþing í Helsinki í vor ásamt Íslandsdeildinni og þar var viðnámsþróttur yfirskriftin. Ég vil vísa til minnisblaðs sem kom út í tengslum við þingið þar sem m.a. kom fram að rangupplýsingaherferðir og fjölþáttaárásir væru þegar í dag daglegur viðburður. Sem dæmi mætti nefna tíð rof á sæstrengjum í Eystrasalti þar sem auknar áhyggjur væru af öryggi viðkvæmra innviða. Það kom fram að þetta undirstrikaði einnig þörf þess að efla norrænt samstarf og samstarf við Eystrasaltsríkin, ESB, NATO og aðra aðila sem deili sömu gildum.
Forseti. Hér er mjög köldum veruleika lýst en það er einsýnt að Norðurlöndin hafa á tiltölulega skömmum tíma tekið afdráttarlausa forystu í því að byggja upp heildstæða stefnu í öryggis- og varnarmálum. Fáir átta sig á því hversu mikil og hröð breyting hefur átt sér stað, eins og ég kom inn á, og ég vil af því tilefni vekja athygli hæstv. utanríkisráðherra á tækifærunum sem við höfum í þessu samstarfi og mikilvægi þess að fulltrúar Íslandsdeildarinnar njóti stuðnings við að koma hagsmunum okkar Íslendinga skýrt á framfæri í þeirri vinnu. Það þarf að efla alþjóðasamstarf þingmanna. Við erum ekki bara til skrauts á þeim vettvangi sem við sinnum í okkar alþjóðastarfi, hvort sem það er á vettvangi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, á vegum NATO-þingsins eða á öðrum vettvangi. Þingmenn sinna alþjóðastarfi yfirleitt af mikilli natni. Ég held að það sé mikið svigrúm til framfara hvað það varðar að við eigum miklu þéttara og nánara samtal á því sviði í aðdraganda slíkra fundarferða. Ég tel að síðasta þing Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í síðustu viku hafi leitt það í ljós. Tækifæri til hagsmunagæslu eru til staðar og við verðum að njóta öflugrar íslenskrar raddar.
Ég ætla að segja eina sögu frá þessu þemaþingi í Helsinki þar sem við í forsætisnefndinni áttum fund með fulltrúum NORDEFCO, þ.e. þarlendum finnskum fulltrúum. Við fengum þar tækifæri til að spyrja þá almennt út í samstarfið. Ég lagði þessa spurningu á borðið: Hvað geta Íslendingar gert og hvar megum við efla okkur? Svarið var á þá leið, svo að ég hafi ekki neitt eftir neinum, að viðkomandi vissi ekki alveg hvað hann átti að segja, honum datt ekkert í hug. Þessu þurfum við að breyta og við ætlum að breyta þessu og við getum breytt þessu.
Ég get ekki látið hjá líða að minnast á Evrópusambandið. Það væri fullkomið ábyrgðarleysi að efla ekki slíkt tvíhliða samstarf og ég held að það sé pólitísk sátt um það. En ég ætla nú samt að fá að minnast á að það er ekki lengra síðan en í sumar að formaður Sjálfstæðisflokksins, nokkrir þingmenn og aðrir úr stjórnarandstöðunni, fóru fram með skilaboð til íslensku þjóðarinnar um að heimsókn Ursulu von der Leyen hingað til lands fæli í sér leynileg áform, grundvallarstefnubreytingar, og gefið var í skyn að þjóðin hefði ekki veitt umboð sitt til að eiga tvíhliða samtal við Evrópusambandið um þessi málefni enda gæti það farið í bága við skyldur okkar við NATO. Það er ekki lengra síðan en í sumar að þetta heyrðist. Ég vona að þessi sameiginlega stefna sé til þess fallin að eyða slíkum sjónarmiðum úr umræðunni. Þau eiga ekki erindi. Ég fagna því að fulltrúar stjórnarandstöðunnar, sem komið hafa hér upp í dag, dragi í land með þetta. Ekki það að þeir hafi allir haft þessi ummæli uppi en þessum misskilningi þarf að eyða. Þetta er ekki einkennandi fyrir alla fulltrúa flokksins og því síður fyrir stjórnmálaflokka sem hafa staðið fyrir festu, ábyrgð og frelsi og öflugu alþjóðasamstarfi í öryggis- og varnarmálum. Þessi stefna ber þess merki að hún standi fyrir þetta og það er vel. Ísland, með sína landfræðilegu sérstöðu og þekkingu, er og verður, hvað sem öðru líður, dýrmætur samstarfsaðili Evrópusambandsins og þetta skapar bara tækifæri. Ábyrgt og rökrétt og skynsamlegt samstarf Íslands og Evrópusambandsins í öryggis- og varnarmálum á ekki að gera tortryggilegt. Ég tel það ekki gert tortryggilegt í hinu stóra samhengi hlutanna, alla vega ekki í þessari umræðu hér í dag.
Áður en ég lýk máli mínu langar mig til að taka undir þær raddir sem hafa heyrst um mikilvægi þess að við berjumst með öllu afli gegn einni stærstu fjölþáttaógn samtímans sem er upplýsingaóreiðan. Hún er ekki bara langt frá okkur, hún er ekki bara í Austur-Evrópu, í kjörklefanum. Hún er í daglegri umræðu og skýr merki eru um að hún láti mjög almennilega á sér kræla í umræðu sem kannski fáir tengja við varnarmál. En ég tengi það við öryggismál vegna þess að allt sem er til þess fallið að grafa undan þeirri samfélagssátt sem við höfum haft hér, um réttindi hinsegin fólks, um réttindi kvenna, um réttinn til að fá að búa og lifa á sínu heimili í öryggi, springur í andlitið á okkur. Þetta er varnarmál, þetta er öryggismál og við eigum að halda þessari umræðu þétt á lofti.
Ég vil líka nefna hér að við þurfum að efla getu íslenskra sprotafyrirtækja og nýsköpunarfyrirtækja til að koma með krafti inn í þessa vinnu með okkur, gera þeim kleift að sækja sér öryggisvottanir frá íslenskum stjórnvöldum svo að þau geti sótt fram hér sem og erlendis. Við þurfum að útfæra stefnumörkun um það hvernig við getum laðað hingað erlendar fjárfestingar með lögmætum og öruggum hætti. Ég er boðin og búin til þess að taka þátt í öllu samráði sem hæstv. ráðherra mun koma til með að koma á fót í því samhengi.